Á safnanótt mun Árbæjarsafn endurskapa horfinn heim, með kvöldvöku á baðstofuloftinu í Árbæ. Þar situr fólk við daufa birtu og stritar við að kemba, spinna og prjóna og húsbóndinn kveður rímur fyrir heimilisfólkið.
Frá og með 2. janúar 2012 verður breyting á þjónustu Árbæjarsafns, en þá verður boðið upp á leiðsagnir alla daga klukkan 13.00 - bæði virka daga og um helgar.
Eftir sem áður er safnið opið utan þessa tíma eftir samkomulagi og hægt er að panta leiðsögn með því að hringja í síma 411-6304 eða senda póst á netfangið minjasafn@reykjavik.is
Þann 12. desember eru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. Af því tilefni verður opnuð sýningin Hinar nýju innréttingar. Skúli Magnússon og Reykjavík 18. aldar á Minjasafni Reykjavíkur.
Jólasýning Árbæjarsafns hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hlotið fastan sess í menningarlífi höfuðborgarinnar á aðventunni. Að þessu sinni verður dagskrá sunnudagana 4., 11. og 18 desember frá kl. 13 til 17.
Frá og með 1. september tekur vetrardagskrá Árbæjarsafns við. Þá er boðið upp á leiðsagnir þrisvar í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13. Safnsvæðið er annars opið, en safnhúsin ekki. Tekið er á móti hópum (bæði skólahópum og ferðmannahópum) eftir samkomulagi. Hægt er að panta leiðsögn á minjasafn@reykjavik.is.
Markaðurinn verður á torginu og hefst kl. 13 og stendur til kl. 16.
Þátttakendur geta komið með grænmeti, handverk eða annað skemmtilegt sem þeir hafa verið að búa til og selt á markaðnum.
Það kostar ekkert að vera með. Árbæjarsafn býður upp á aðstöðu á torginu en fólk verður sjálft að koma með borð, stóla, tjald eða það sem hverjum hentar.
Mánudaginn 22. ágúst nk. kl. 17, í húsnæði Landnámssýningarinnar 871 +/- 2, mun þjóðfræðingurinn Owe Ronström mun gefa okkur innsýn í nýjustu rannsóknir sínar í erindinu: "Understanding islands - myths, metaphors, images". Eyjalíf ætti að heilla okkur Íslendinga og því hvetjum við sem flesta til að koma og eru allir, eyjaskeggjar og aðrir, hjartanlega velkomnir.
Sunnudaginn 21. ágúst verður búningadagur barna á Árbæjarsafni.
Börn frá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur mæta í búningum og dansa á torginu milli kl. 14 og 15. Öllum börnum er velkomið að dansa með og læra sporin.
Stórmót Taflfélags Reykjavíkur og Árbæjarsafns fór fram í blíðskaparveðri í Árbænum á sunnudag. Hátíðardagskráin hófst með lifandi tafli, en skákmeistararnir Guðmundur Kjartansson og Jóhann H. Ragnarsson stýrðu þar lifandi fólki til orrustu á reitunum 64.
Hið árlega Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 14. ágúst. Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið kl. 14. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 7 mín. á skák. Hægt er að skrá sig til leiks í miðasölu Árbæjarsafns síma 4116320 og hjá Sigurlaugu Regínu: sigurlaug.regina@internet.is.
Næstkomandi sunnudag verður sveitasælan í algleymingi á Árbæjarsafni. Í hugum margra hafa gömlu sveitastörfin yfir sér rómantískan blæ en til að fæða og klæða fólk þurfti þó mörg handtök. Starfsfólk Árbæjarsafns mun veita gestum innsýn inn í þennan horfna heim á sunnudaginn kemur ásamt tækifæri til að aðstoða heimilisfólkið í gamla bænum við störf sín.
Verslunarmannahelgin 30. júlí-1. ágúst
Verslunarmannahelgin verður með líku sniði og undanfarin ár á Árbæjarsafni. Áhersla verður lögð á barnamenningu og leiki. Allir eiga að finna eitthvað við sitt hæfi á Árbæjarsafni. Heitt verður á könnunni í Dillonshúsi alla helgina.
Sunnudaginn 24. júlí, verður mikið um að vera á Árbæjarsafni, en þann dag verður hin árlega harmonikuhátíð haldinn með „pomp og prakt“.
Sýningin Skýjum ofar verður
opnuð í Listmunahorni Árbæjarsafns
laugardaginn 16. júlí kl. 14.00
Sýningin stendur yfir til 4. ágúst
alla daga frá kl. 10 – 17.
Heyannir eru árviss viðburður á hverju býli. Nú á sunnudaginn er komið að þeim degi þegar amboðin verða tekin fram á Árbæjarsafni og ljár borinn í gras. Gestum og gangandi er boðið að taka virkan þátt í heyönnum eins og þær tíðkuðust fyrir daga heyvinnuvéla.
Hinn árlegi íslenski safnadagur verður næst komandi sunnudag, 10. júlí og taka söfn um allt land þátt í deginum. Árbæjarsafn lætur ekki sitt eftir liggja og býður safnið upp á brot af því besta í starfi safnsins. Af því tilefni verður aðgangur ókeypis að Árbæjarsafni og fjölbreytt dagskrá.
Brúðubíllinn kemur í heimsókn á miðvikudag, klukkan 14. Lilli api og félagar verða í feiknastuði, eins og alltaf, á Árbæjarsafni. Aðgangur er ókeypis fyrir þá sem ætla að horfa á Brúðubílinn.
Minjasafn Reykjavíkur býður gestum og gangandi til sögugöngu fimmtudagskvöldið 30. júní kl. 20. Lagt verður upp frá Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Allir velkomnir og þátttaka ókeypis.
Sunnudaginn 3. júlí verður boðið upp á hina árvissu og vinsælu fornbílasýningu í Árbæjarsafni. Fornbílaklúbbur Íslands sýnir ýmsa merka bíla í eigu félagsmanna á safnsvæðinu. Félagsmenn verða á staðnum og spjalla við gesti.
Dagur rabarbarans verður haldinn í Árbæjarsafni (Lækjargötu 4)
þann 30. júní 2011 kl: 15 – 17.
Árbæjarsafn býður upp á hið sívinsæla tálgunarnámskeið nú í júlí. Opnað hefur verið fyrir skráningu og er hægt að hringja á opnunartíma safnsins, kl. 10-17, og bóka pláss á námskeiðið. Frekari upplýsingar má sjá með því að smella á fréttina.
Félag eldri borgara í Reykjavík (FEB) og Heimilisiðnaðarfélag Íslands
standa fyrir hátíðardagaskrá í Árbæjarsafni að kvöldi fimmtudags
23. júní 2011 í tilefni af Jónsmessu.
Sýning á verkum Sigrúnar Guðmundsdóttur, myndhöggvara, Damaskussmíði - Pattern Welding verður opnuð í Listmunahorni Árbæjarsafns laugardaginn 25. júní kl. 14:00.
Án framlags kvenna væri margt öðruvísi í Reykjavík. Sunnudaginn 19. júní, Kvennréttindadaginn, verður á Árbæjarsafni skyggnst inn í heim genginna reykvískra kvenna á 19. öld af öllum stigum þjóðfélagins.
Minjasafn Reykjavíkur býður gestum og gangandi til sögugöngu fimmtudagskvöldið 16. júní kl. 20. Lagt verður upp frá Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Allir velkomnir og þátttaka ókeypis.
Í Árbæjarsafni verða fallegir þjóðbúningar í aðalhlutverki á 17. júní venju samkvæmt og eru gestir hvattir til að mæta í eigin búningum. Fjallkonu safnsins verður skautað kl. 14. og geta gestir fylgst með hvernig faldur, faldblæja og spöng eru sett upp og borin við skautbúning.
Sunnudaginn 12. júní verður tileinkaður hestvögnum og vagnasmíði og af því tilefni verður opnuð sýning sem ber yfirskriftina Kerruöldin. Vagnar og kerrur komu seint til sögunnar á Íslandi sé miðað við önnur lönd í Evrópu. Kristján IX Danakonungur veitti bónda ...
Munið sýningu brúðubílsins klukkan 14 í dag, Lilli api og félagar verða í feiknastuði, eins og alltaf, á Árbæjarsafni.
Sunnudaginn 5. júní verður hinn árlegi Handverksdagur Heimilisiðnaðarfélags Íslands á Árbæjarsafni. Venju samkvæmt munu félagsmenn sýna margvíslegt handverk eins og útsaum, baldýringu, knipl, perlusaum, tóvinnu, spjaldvefnað, rússneskt hekl og sauðskinnsskógerð.
Laugardaginn 6. júní kl 14:00 verður opnuð sýning Ingibjargar Helgu Ágústsdóttur Með Breiðafjörðinn í bakgarðinum í Listmunahorninu á Árbæjarsafni
Sumarstarf Árbæjarsafns hefst að venju 1. júní og verður safnið opið gestum og gangandi alla daga í júní, júlí og ágúst frá kl. 10 til 17.
Á sunnudögum í sumar verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá sem fyrr.
Sumardagskrá Árbæjarsafns tekur gildi n.k. miðvikudag, 1. júní. Hægt að er fræðast um fjölbreytta og skemmtilega dagskrá safnsins með því að smella á þessa frétt.
Sýningin Ekki snerta jörðina verður opnuð á morgun fimmtudag 14. apríl í Þjóðminjasafni Íslands. Sýningin er farandsýning og fjallar um leiki 10 ára barna í dag. Sýningin er samvinnuverkefni eftirtalinna safna: Þjóðminjasafns Íslands, Minjasafns Reykjavíkur, Minjasafns Ausurlands, Þjóðfræðistofunnar á Hólmavík, Byggðasafns Reykjanesbæjar, Lækningaminjasafns Íslands í Nesi, Byggðasafns Árnesinga og Minjasafns Akureyrar.
Næstkomandi þriðjudag 29. mars kl. 17 flytur Erla Hulda Halldórsdóttir fyrirlestur á Landnámssýningunni, Aðalstræti 16. Er þetta sjötti og síðasti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð Minjasafns Reykjavíkur um konur í reykjavík á 19. öld.
Í tilefni 300 ára ártíðar Skúla fógeta Magnússonar hafa nemendur ljósmyndasvið Tækniskólans rannsakað hans tíma með aðstoð Minjasafns Reykjavíkur.