Varðveisludeild

Varðveisludeild Minjasafns Reykjavíkur varðveitir muni sem varpa ljósi á lifnaðarhætti og daglegt líf í borginni. Unnið er að söfnun gripa eftir söfnunarstefnu safnsins, en söfnunarsvæði þess er Reykjavík og þau nágrannasveitarfélög sem ekki hafa eigin minjasöfn. Allir gripir sem safninu áskotnast eru skráðir í menningasögulega gagnagrunninn Sarp.

Við tökum við gripum sem falla að söfnunarstefnu safnsins og veitum upplýsingar um safngripi.

Minjasafn Reykjavíkur greiðir ekki fyrir gripi.




Senda Prenta Senda á Facebook

Viðburðir


Kvoldvaka_safnanott

Safnanótt - 10. febrúar | 07.02.2012

Á safnanótt mun Árbæjarsafn endurskapa horfinn heim, með kvöldvöku á baðstofuloftinu í Árbæ. Þar situr fólk við daufa birtu og stritar við að kemba, spinna og prjóna og húsbóndinn kveður rímur fyrir heimilisfólkið.


Árbær í vetrarbúningi

Aukin þjónusta Árbæjarsafns yfir veturinn | 30.12.2011

Frá og með 2. janúar 2012 verður breyting á þjónustu Árbæjarsafns, en þá verður boðið upp á leiðsagnir alla daga klukkan 13.00 - bæði virka daga og um helgar. Eftir sem áður er safnið opið utan þessa tíma eftir samkomulagi og hægt er að panta leiðsögn með því að hringja í síma 411-6304 eða senda póst á netfangið minjasafn@reykjavik.is


Innrettingar_2011

Sýning í tilefni þess að 300 ár eru liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar | 14.12.2011

Þann 12. desember eru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. Af því tilefni verður opnuð sýningin Hinar nýju innréttingar. Skúli Magnússon og Reykjavík 18. aldar á Minjasafni Reykjavíkur.

Skoða alla viðburði