Safnfræðsla
Markmið safnfræðslu Minjasafns Reykjavíkur er að efla söguvitund, skilning og víðsýni sem og auka þekkingu á sögu Reykjavíkur. Með heimsókn í Árbæjarsafn eða á Landnámssýninguna 871 +/-2 í Aðalstræti 16 í fylgd safnkennara eða leiðsögumanna fá nemendur og gestir tækifæri til að skynja söguna enn betur.
Lögð er áhersla á að þjónusta skóla og skólafólki. Þar er margt sniðið að þörfum skólanna, enda tekur safnið við kennurum og nemendum eftir samkomulagi þeim að kostnaðarlausu. Panta þarf heimsóknir með fyrirvara.
Netfang Árbæjarsafns er minjasafn@reykjavik.is og sími 411 6304. Æskilegt er að skipta stórum bekkjum því húsin eru þröng. Nauðsynlegt er að nemendur séu vel klæddir og skóaðir því safnsvæðið er stórt.
Netfang Landnámssýningarinnar í Aðalstræti er landnam@reykjavik.is og sími 411 6370. Tekið er á móti eini bekkjardeild í einu.
Heimsókn á Árbæjarsafn:
Komdu að leika - miðast við elsta árgang leikskóla og yngstu skólastig grunnskóla.
Gagnvirk sýning þar sem nemendur geta fræðst um leiki og leikföng barna á 20. öld.
Senn koma jólin – miðast við 5 ára nemendur leikskóla og yngsta árgang grunnskóla.
Fyrir leikskóla er boðið upp á sérstaka jólasýningu sem ber yfirheitið: Senn koma jólin. Þá er fjallað um lífið í gamla daga svipað og í verkefninu Sveitin í gamla daga nema áherslan er á jólaundirbúning og jólahald. Farið er með börnin í gamla býlið Árbæ og torfkirkju safnsins. Þetta verkefni er sérstaklega ætlað 5 ára gömlum nemendum í leikskólum og yngsta árgangi grunnskóla. Byrjað er að taka við pöntunum 1. október og eru kennarar hvattir til að sækja um tímalega vegna mikillar aðsóknar.
Einnig býðst leikskólum og grunnskólum að heimsækja safnið á Þorranum. Þar er áherslan lögð á matarræði Íslendinga áður fyrr, með sérstaka áherslu á hinn svo nefnda Þorramat.
Sveitin í gamla daga - safnfræðsla sniðin að þörfum 3. og 4. bekkjar
Þá er farið með börnin í gamla býlið Árbæ og þar fjallað um lífið í gamla bændasamfélaginu, sjálfsþurftabúskap, matargerð, tóvinnu og aðbúnað barna. Bærinn er skoðaður; baðstofa, hlóðaeldhús og fjós. Þá eru nemendur hvattir til að setja sig í spor forfeðranna og þau velta fyrir sér hvernig það var að búa í torfbæ án rafmagns og nútímaþæginda. Þetta verkefni er ætlað 3. og 4. bekk og æskilegt er að tengja heimsóknina við námsefnið Ísland áður fyrr eða Komdu og skoðaðu íslenska þjóðhætti.
Húsagerð og byggingatækni - miðast við framhaldsskóla
Árbæjarsafn býður framhaldsskólunum að skoða Húsverndarstofuna og sýninguna Húsagerð höfuðstaðar. Sýningin miðast við tímabilið 1840 til 1940, allt frá svo nefndum steinbæjum til steinsteypunar. Raunverulegir hlutar úr húsum er notaðir til að fræða nemendur um handverk fyrri ára.