

Bæklingur á 5 tungumálum um sýninguna.
Með PDF sniði.
“Sýningin er glæsileg á að líta, fróðleg og nýstárleg og er gerð af tilfinningu fyrir rýminu og staðnum. Hér fara saman fjölbreytt miðlunartækni, gott aðgengi og framsetning í hæsta gæðaflokki.” (úr áliti dómnefndar NODEM 2006, Nordic Digital Excellence in Museums)

Á sýningunni er fjallað um landnám í Reykjavík og byggt er á fornleifarannsóknum sem fram hafa farið í miðbænum. Miðpunktur sýningarinnar er skálarúst frá 10. öld, sem fannst þegar grafið var fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis og Túngötu. Búið var í skálanum frá því um 930 til 1000. Norðan við skálann fannst veggjarbútur sem er ennþá eldri, eða frá því um eða fyrir 871 og eru það elstu mannvistarleifar sem fundist hafa á Íslandi.
Lesa nánar um sýninguna
Skoða muni sem eru á sýningunni
Leiðsögn
Boðið er upp á leiðsagnir fyrir skólahópa á öllum skólastigum. Einnig er hægt að panta leiðsagnir fyrir hópa eftir samkomulagi. Panta þarf leiðsagnir með fyrirvara.
Nánar um leiðsögn
Nánar um safnfræðslu
Móttaka hópa utan opnunartíma

Verslun
Lítil minjagripa- og gjafavöruverslun er í anddyri sýningarinnar. Þar eru til sölu ýmsir nýstárlegir minjagripir og önnur sérhönnuð gjafavara. Verslunin er opin á opnunartíma sýningarinnar.
Skoða úrval minjagripa

Hvað vitum við um Snorra?
Bókarkynning laugardaginn 12. desember á Landnámssýningunni, Aðalstræti 16, frá kl. 13:30 til 15. Óskar Guðmundsson mun kynna nýja bók sína um Snorra og fræðimennirnir Helgi Þorláksson, Úlfar Bragason og Vésteinn Ólason munu ræða um Snorra líf hans og verk. Allir velkomnir.
Vefsetur Landnámssýningarinnar opnar
Föstudaginn 29. febrúar opnar Minjasafn Reykjavíkur nýtt vefsetur með fjölbreyttu og vönduðu margmiðlunarefni sem tengist Landnámssýningunni Reykjavík 871 ± 2.
Slóðin á vefsetrið er www.reykjavik871.is og þar má finna margskonar upplýsingar varðandi landnám Íslands, landnámsmenn, landkosti í Reykjavík og margt fleira.
Efnið á vefsetrinu byggir á nýjum rannsóknum fræðimanna í ýmsum greinum, ekki síst fornleifafræði, sagnfræði og náttúrufræði og framsetning þess er bæði skýr og skilmerkileg. Í því sambandi má benda á að Landnámssýningin hefur hlotið einstaklega góð viðbrögð gesta, en einnig fagverðlaun á sviði safnastarfs og miðlunar, svo sem Íslensku safnaverðlaunin og norræn safnaverðlaun á sviði margmiðlunar. Í áliti norrænu dómnefndar segir: "Sýningin er glæsileg á að líta, fróðleg og nýstárleg og er gerð af tilfinningu fyrir rýminu og staðnum. Hér fara saman fjölbreytt miðlunartækni, gott aðgengi og framsetning í hæsta gæðaflokki." Þá ber að geta þess að Minjasafn Reykjavíkur keppir nú til úrslita um fagverðlaunin European Museum of the Year 2008, en verðlaunin fyrir safn ársins verða kunngjörð í Dublin í maí á þessu ári.

Landnámssýningin tilnefnd til evrópsku safnaverðlaunanna
Fyrir réttu ári síðan, í janúar 2007, ákvað Safnaráð að tilnefna Minjasafn Reykjavíkur til Evrópusafnaverðlaunanna 2008 (European Museum of the Year Award 2008 - EMYA2008) fyrir glæsilega viðbót við safnið, Landnámssýninguna Reykjavík 871±2 í Aðalstræti. Til greina koma söfn sem stofnuð hafa verið á sl. 2 árum, eða söfn sem unnið hafa að umfangsmiklum viðbótum, endurbótum eða breytingum á sl. 2 árum.
Evrópusafnaverðlaunin eru veitt af Evrópuráði safna (European Museum Forum - EMF).
Í ágúst síðastliðnum komu hingað tveir fulltúar frá Evrópuráði safna og kynntu sér Landnámssýninguna og aðra starfsemi Minjasafns Reykjavíkur. Í framhald af því hefur Minjasafnið nú verið valið á lista safna sem keppa munu til úrslita um Evrópsku safnaverðlaunin.
Evrópsku safnaverðlaunin voru veitt í maí síðastliðnum. Því miður auðnaðist Minjasafni Reykjavíkur ekki að hljóta þá nafnbót.