Þjóðbúningadagur barna sunnudaginn 21. ágúst
Sunnudaginn 21. ágúst verður búningadagur barna á Árbæjarsafni.
Börn frá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur mæta í búningum og dansa á torginu milli kl. 14 og 15. Öllum börnum er velkomið að dansa með og læra sporin.
Sýning verður á íslenskum þjóðbúningum barna og kynning á mismunandi búningum og námskeiðum í gerð þeirra.
Við hvetjum börn og fullorðna til að mæta í búningunum sínum.
Tilbaka