Eldri viðburðir

Örnámskeið - tálgunarnámskeið

Bjarni_Th.DietzÁrbæjarsafn býður upp á hið sívinsæla tálgunarnámskeið nú í júlí. Opnað hefur verið fyrir skráningu og er hægt að bóka pláss á námskeiðið með því að hringja í síma 411 6320 á opnunartíma safnsins milli 10 og 17 alla daga. Verð er óbreytt frá því í fyrra, 2000 kr. á þátttakanda.

Æskilegt er að foreldrar eða forráðamenn barna undir 10 ára aldri fylgi börnum sínum á námskeiðið. Foreldrar sem fylgja börnum sínum á námskeiðið greiða ekki, nema þeir taki virkan þátt í námskeiðinu. Miðað er við aldurinn 6-12 ára. Hvert námskeið stendur yfir í þrjár klst. Hámarksfjöldi á hvert námskeið er 10 börn og allt að 12 fullorðnir.

Í júlí verða eftirtalinn námskeið í boði:

Mánudaginn 4. júlí, kl. 13-16.

Miðvikudaginn 6. júlí, kl. 13-16.

Mánudaginn 11. júlí, kl. 13-16.

Miðvikudaginn 13. júlí. kl. 13-16.

 



Tilbaka




Senda Prenta Senda á Facebook