Með Breiðafjörðinn í bakgarðinum
Laugardaginn 6. júní kl 14:00 verður opnuð sýning Ingibjargar Helgu Ágústsdóttur Með Breiðafjörðinn í bakgarðinum í Listmunahorninu á Árbæjarsafni.
Innblástur fyrir verkin á þessari sýningu sækir hún í garðinn sinn í Stykkishólmi og börnin sem leika sér þar á sumrin. Verkin hafa ákveðin þjóðsagnakenndan blæ, enda ekki við öðru að búast, með Breiðafjörðinn í bakgarðinum.
Sýningin stendur til 23. júní og hægt er að skoða sýninguna alla daga milli 10 og 17.
Tilbaka