Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur

Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 12. ágúst. Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið klukkan 14:00. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 7 mín. á  skák.

Að venju verður lifandi tafl, sem mun hefjast klukkustund fyrr, eða klukkan 13:00. Lifandi taflið er fyrir  löngu orðinn árviss og skemmtilegur viðburður í dagatali skákmanna og Árbæjarsafns. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Torfa Leósson (torfi.leosson@gmail.com), s: 697-3974, til að skrá sig til þátttöku í lifandi tafli.

Enn eru laus pláss í lifandi taflinu og leika peð, riddara, biskup,  hrók, kóng eða drottningu. Þeir sem taka þátt í lifandi taflinu mæti á Árbæjarsafn þann 12. ágúst kl.12.30 til að fara í búninga.

Lifandi TaflLifandi Tafl

Þátttökugjöld í Stórmótinu eru kr. 1100 fyrir 18 ára og eldri, en ókeypis  fyrir yngri en 18 ára og eru þátttökugjöld jafnframt aðgangseyrir í  safnið. Þeir sem eiga ókeypis aðgang í safnið, t.d menningarkort, þurfa ekki að borga þátttökugjöld í mótið.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í Stórmótinu, 12.000 kr., 8.000 kr. og 5.000 kr.

 Stórmótið

Ekkert kostar að taka þátt í Stórmótinu fyrir þá sem taka þátt í lifandi taflinu.



Tilbaka




Senda Prenta Senda á Facebook