Ný sýning í Listmunahorninu
Á sýningunni gefur að líta handverk hjónanna Rósu Valtngojer og Zdenek Patak. Rósa verður þar með íslenska fugla unna úr leir og Zdenek sýnir ljós frá Mupimup, sem er hönnunarvinnsla þeirra hjóna er byggir á endurvinnslu á efni sem til fellur í samfélaginu.
Rósa og Zdenek eru búsett á Stöðvarfirði sem er heimabær Rósu en Zdenek er fæddur og uppalinn í Prag. Handverkið er ekki það eina sem þau eru að fást við á Stöðvarfirði en árið 2008 stofnuðu þau hönnunarvinnsluna Mupimup sem rekur vinnustofur og verslun á Stöðvarfirði. Undanfarið ár hafa Rósa og Zdenek verið að vinna að uppbyggingu á Stöðvarfirði með verkefni sínu sem kallast Sköpunarmiðstöð og snýst um að nýta fyrrum frystihús staðarins í samfélags- og menningarlegum tilgangi. Þar fyrir utan taka þau hjónin virkan þátt í reksri Gallerí Snærós á Stöðvarfirði sem var stofnað árið 1988 af foreldrum Rósu, þeim Ríkharði Valtingojer og Sólrúnu Friðriksdóttur.
Tilbaka