Leiðsögn um Alþingisreitinn
Fornleifar frá Landnámsöld

Næstkomandi sunnudag, 24. júní, verður boðið upp á leiðsögn um fornleifauppgröftinn á hinum svokallaða Alþingisreit á horni Tjarnargötu og Vonarstrætis. Leiðsögnin hefst klukkan 14:00 og lagt verður upp frá Landnámssýningunni Reykjavík 871+/-2 við Aðalstræti 16.
Fornleifafræðingar sem starfa við uppgröftinn munu í sumar leiða sunnudagsgöngur um svæðið, segja frá rannsókn sumarsins og því sem hefur komið í ljós á allra síðustu dögum.
Fornleifauppgröfturinn er framhald af uppgreftri frá árunum 2008-2009 þar sem grafið var upp um 2000 fermetra svæði og minjar frá landnámi til okkar daga komu í ljós. Töluvert af fornleifum frá fyrstu tíð fundust og í ljós kom skipulagt athafnasvæði landnámsmanna, þar sem járnvinnsla fór fram ásamt hefðbundnum störfum sem tilheyrðu húshaldi þessa tíma. Um 400 fermetra svæði var þá skilið eftir sem verður nú rannsakað að fullu.
Alþingi kostar uppgröftinn og hefur þar að auki tekið upp samstarf við Minjasafn Reykjavíkur um miðlun á yfirstandandi rannsókn. Nú þegar hafa verið sett upp upplýsingaskilti í kringum uppgraftarsvæðið og boðið verður upp á reglulegar leiðsagnir í allt sumar, bæði á ensku og íslensku. Valdir gripir sem fundust árið 2008 til 2009 eru einnig til sýnis á Landnámssýningunni.
Markmiðið með samstarfinu er að auka sýnileika rannsóknarinnar og varpa ljósi á minjarnar sem þar kunna að leynast og samhengi þeirra við aðrar minjar í miðbæ Reykjavíkur.
Tilbaka