Horfðu til himins

horfdu_til_himinsMinjasafn Reykjavíkur býður gestum og gangandi til sögugöngu fimmtudagskvöldið 21. júní kl. 20.

Lagt verður upp frá Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Allir velkomnir og þátttaka ókeypis.

Gengið verður um miðborgina og athygli göngumanna vakin á skrautlegum húsum.  
Göngumenn skoða m.a. hús sem ber einkenni steinsteypuklassíkur í fáguðum endurreisnarstíl.
Þá verður einnig skoðaður fálkaskjöldur með kórónu, útskorið skip og fálkar.



Tilbaka




Senda Prenta Senda á Facebook