Skúli Magnússon og Viðey - 12. maí 2012

Þann 12. desember síðastliðinn voru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. Af því tilefni er við hæfi að bregða upp svipmyndum af Skúla, verkum hans og samtíð, í því húsi sem hann lét reisa sem embættisbústað og flutti inn í með fjölskyldu sinni haustið 1755. Áhrif Skúla Magnússonar á samtíðarmenn sína og uppbyggingu iðnaðar á Íslandi voru mikil og mótuðu sögu landsins og ekki síst þróun þéttbýlis í Reykjavík.
Ferjutollur er í boði Samtaka iðnaðarins fyrir þá gesti sem sækja dagskrána heim.
Ferja til Viðeyjar kl. 12:15, 13:15, 14:15 og 15:15.
Ferja frá Viðey kl. 13:30, 14:30, 15:30, 16:30 og 17:30.

Dagskrá í Viðey
13.00 – 14.30 Viðeyjarstofa
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi, setur dagskrána.
Um sýslumennsku Skúla Magnússonar í Skagafirði ‒‒ Ásgeir Jónsson, hagfræðingur.
Gleymd perla: Íslandslýsing Skúla Magnússonar ‒‒ Guðmundur Jónsson, sagnfræðingur.
Sveitabóndi Skúla ‒‒ Sveinn Agnarsson, hagfræðingur.
Innréttingarnar í Reykjavík ‒‒ Hrefna Róbertsdóttir, sagnfræðingur.
Gestum býðst að kaupa sér hressingu í anda Skúla Magnússonar.
15.00 – 16.00 Staðarskoðun
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, verkefnastjóri Viðeyjar, leiðir gönguna
Guðný Gerður Gunnarsdóttir, borgarminjavörður, segir frá byggingu Viðeyjarstofu og endurgerð hennar árið 1988.
Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir, sagnfræðingur, segir frá ræktunartilraunum Innréttingarmanna.
16.00 – 18. aldar tónlist í Viðeyjarstofu
Tónlist frá tíð Skúla Magnússonar í flutningi Júlíu Traustadóttur, sópran, Evu Þyrí Hilmarsdóttur, píanó og Sólrúnar Gunnarsdóttur, fiðla.
Tilbaka