Borgarsögusafn
Sagan okkar
Staðirnir okkar
Viðburðir
Viðburðir
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Sýningarspjall: Daníel Perez Eðvarðsson
Daníel Perez Eðvarðsson býður gesti velkomna í spjall um sýningu hans MAÐURINN SEM SVAF EINS OG FLAMENGÓ DANSARI laugardaginn 13. apríl kl. 14 í Skoti Ljósmyndasafnsins. Aðgangur ókeypis og öll velkomin. Á sýningunni er fjallað um hátíðarmenningu. Sýndar eru ljósmyndir frá Andalúsíu á Spáni sem hann tók fyrsta veturinn sem hann var búsettur á Spáni 2021-2022, en Daníel er hálfur Spánverji en ólst upp á Íslandi. Samhliða svarthvítum prentum frá Spáni verða sýndar litmyndir af Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum sem Daníel heimsótti sumarið 2023. Þannig fjallar sýningin um hátíðarmenningu, kaþólikka, annars vegar og Íslendinga, hinsvegar.