Sumarstarf Árbæjarsafns hefst 1. júní
Sumarið er komið og hefðinni samkvæmt hefst sumarstarf Árbæjarsafns 1. júní. Dagskrá sumarsins verður að vanda fjölbreytt og skemmtileg. Meðal viðburða má nefna Jónsmessugleði, skátahátíð, fornbíladag, harmonikkuhátíð, heyannir, skákmót og haustmarkað.
Árbæjarsafn kemur vel undan vetri. Sauðburður gekk vel og ungviðið á safninu blómstrar. Enda má segja að sumarið verði á ýmsan hátt helgað æskunni, því í sumarbyrjun verða opnaðar þrjár sýningar sem tengjast börnum og ungu fólki.
Tilbaka