Fornbíladagurinn sunnudaginn 3. júlí
Sunnudaginn 3. júlí verður boðið upp á hina árvissu og vinsælu fornbílasýningu í Árbæjarsafni. Fornbílaklúbbur Íslands sýnir ýmsa merka bíla í eigu félagsmanna á safnsvæðinu. Félagsmenn verða á staðnum og spjalla við gesti.
Heimsókn á Árbæjarsafn gefur fólki kost á að upplifa ferðalag aftur í tímann. Starfsfólk klæðist fatnaði eins og tíðkaðist á 19. öld og húsfreyjan í Árbæ býður upp á nýbakaðar lummur. Í haga eru kindur, lömb, kýr og kálfur. Hægt er að fylgjast með mjöltum alla daga kl. 16:30.
Heitt verður á könnunni í Dillonshúsi og boðið upp á þjóðlegar og heimilislegar veitingar. Safnið verður opið á sunnudaginn kl. 10-17 en sýning Fornbílaklúbbsins hefst kl. 13.
Tilbaka