Eldri viðburðir

Damaskussmíði - Pattern Welding

Sýning á verkum Sigrúnar Guðmundsdóttur, myndhöggvara, Damaskussmíði - Pattern Welding verður opnuð í Listmunahorni Árbæjarsafns laugardaginn 25. júní kl. 14:00. Sýningin stendur yfir til 14. júlí alla daga frá kl. 10-17. Verkum sýningarinnar má skipta í tvennt, annars vegar eru hnífar og dálkar unnir með vestrænni damaskustækni sem byggir á því að sjóða saman járn- og stálflögur og hins vegar eru ljósmyndir af vinnuferli og einstökum hnífsblöðum.

Í tilefni sýningarinnar var gefin út vegleg sýningarskrá á íslensku og ensku sem Eiríkur Þorláksson, listfræðingur, skrifar formála að sem hann kallar Stálið dularfulla og þar segir hann m.a.: „Það er ljóst að Sigrún nýtur þess leiks við stálið dularfulla, sem hún hefur nú stundað um árabil, og að sá leikur hefur orðið henni að list, sem hefur vakið verðskuldaða athygli.“

Sigrún Guðmundsdóttir, myndhöggvari, hefur unnið að listsköpun í rúma fjóra áratugi eða frá því hún lauk námi frá Statens Kunstakademi í Osló árið 1969. Þar kynntist hún vinnu í eldsmíði og tók hún upp þráðinn fyrir tæpum tveimur áratugum en fljótlega upp úr því hóf hún að gera ýmsar tilraunir í damaskussmíði í listsköpun sinni.

Sýningarstjóri er Ingibjörg Böðvarsdóttir, myndlistarmaður.

Mynd: Hluti hnífsblaðs unninn með samsettri lagskiptri samsuðutækni (damaskustækni), 462 lög.



Tilbaka




Senda Prenta Senda á Facebook