Heyannir 22. júlí

Heyannir eru árviss viðburður á hverju býli. Nú á sunnudaginn er komið að þeim degi þegar amboðin verða tekin fram á Árbæjarsafni og ljár borinn í gras. Gestum og gangandi er boðið að taka virkan þátt í heyönnum eins og þær tíðkuðust fyrir daga heyvinnuvéla. Um aldir höfðu Íslendingar engin önnur verkfæri en ljá, orf og hrífu til að afla vetrarforðans. Víða var heyjað upp á gamla mátann fram yfir miðja síðustu öld, en nú eru gömlu handbrögðin sjaldséð í sveitum landsins. Því er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja rifja upp fyrri kynni við orf og hrífur að taka þátt í heyannadegi Árbæjarsafns.

ATH. Heyannir falla niður ef úrkoma verður mjög mikil. Ákvörðun verður tekinn á sunnudeginum. Hægt verður að hafa samband við afgreiðslu í síma 411 6320.

Heyannir_2009



Tilbaka




Senda Prenta Senda á Facebook