Safnadagurinn 8. júlí

eldsmidur_stor_2012Hinn árlegi íslenski safnadagur verður næst komandi sunnudag, 8. júlí og taka söfn um allt land þátt í deginum. Árbæjarsafn lætur ekki sitt eftir liggja. Í tilefni dagsins verður aðgangur ókeypis að safninu og boðið verður upp á fjölbreytta og áhugaverða dagskrá.

Íslenska skátahreyfingin fagnar nú um þessar mundir 100 ára sögu skáta á Íslandi. Að því tilefni verða skátarnir með fjölbreytta dagskrá á Árbæjarsafni á safnadaginn. Meðal annars munu þeir standa fyrir skátaleikjum, skátasöngvum, skátaþrautum, póstleik, Muurikka og útieldun að skátasið.

Auk skátanna munu félagar í félagi Íslenska eldsmiða sýna listir sínar á safninu. Eldsmiðirnir munu búa til nagla, slá saum, og mála þá bláa. Gestum og gangandi býðst svo að kaupa naglanna en allur ágóði að sölunni rennur til átaksins Bláa naglans. Blái naglinn er átak til vitundarvakningar um blöðruhálskrabbamein meðal karla.

Í Árbænum steikja heimasætur lummur fyrir gesti og gangandi og á baðstofuloftinu situr kona við tóskap.  Á svæðinu verður  harmonikkuleikari sem mun þenja dragspilið.

Guðsþjónusta verður í safnkirkjunni kl. 14. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson þjónar fyrir altari. Allir velkomnir.

Sem fyrr verður heitt á könnunni í Dillonshúsi og hægt að kaupa sér kaffi og meðlæti.

 



Tilbaka




Senda Prenta Senda á Facebook