17. júní á Árbæjarsafni
Í Árbæjarsafni verða fallegir þjóðbúningar í aðalhlutverki 17. júní venju samkvæmt og eru gestir hvattir til að mæta í eigin búningum. Fjallkonu safnsins verður skautað kl. 14 og geta gestir fylgst með því hvernig faldur, faldblæja og spöng eru sett upp og borin við skautbúning.
Upp úr klukkan eitt má búast við að glæsivagnar Fornbílaklúbbs Íslands fari að sýna sig á safnsvæðinu og verði til sýnis fram eftir degi.
Síðan er það rúsínan í pylsuendanum, klukkan fjögur koma bæði börn og fullorðnir í þjóðbúningum og dansa á torginu.
Margar nýjar sýningar hafa verið opnar í Árbæjarsafni í vor. Það má nefna Farfi og fegurð – saga húsamálnunar, Lög unga fólksins, sýningin sem var unnin af nemendum við HÍ, Horft fyrir Horn, sýning Þórhalls Árnasonar í Listmunahorninu. Krummakrunk – hrafninn í íslensku samfélagi og loks Ekki snerta jörðina, sýning um leiki barna.
Marenza Poulsen býður upp á ljúffengar veitingar í Dillonshúsi.
Tilbaka