Kvöldgöngur 2012
Gálgaganga, fimmtudaginn 14. júní, kl. 20.
Listasafn Reykjavíkur.
Jónatan Garðarsson leiðir göngu um Kjarvalsreitnum í Gálgahrauni (Garðabæ) í tengslum við sýninguna Gálgaklettur og órar sjónskynsins. Rútuferð frá Grófarhúsinu kl. 19:30, en gangan sjálf mun hefjast við bílastæðið við Hraunsvík nærri Sjálands- og Ásahverfum.

Horfðu til himins, fimmtudaginn 21. júní, kl. 20
Minjasan Reykjavíkur
Í þessari göngu verður horft til himins og athygli göngumanna vakin á skrautlegum húsum miðborgarinnar. Gönguna leiðir Helga Maureen Gylfadóttir, sagnfræðingur. Hefst við Grófarhúsið.

Reykjavíkurhöfn, fimmtudaginn 28. júní, kl. 20
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Ljósmyndaganga um gömlu höfnina þar sem fjallað verður um þróunarsögu hennar með hjálp gamalla ljósmynda. Gönguna leiðir Gísli Helgason, sagnfræðingur. Hefsti við Grófarhúsið.

Reykjavík Safarí, fimmtudaginn 5. júlí kl. 20
Fjölmenningarleg kvöldganga í boði allra safnanna
Menningarlífið í borginni kynnt á spænsku, pólsku, ensku, litháísku og tælensku. Hefst við Grófarhúsið.

Fyrir ofan garð og neðan, fimmtudaginn 12. júlí, kl. 20
Borgarbókasafn Reykjavíkur
Gengið verður um gróna reiti í miðbæ Reykljavíkur og dregnar fram bókmenntir sem þangað sækja rætur. Hefst við Grófarhúsið.

"Sjálfstætt fólk", fimmtudaginn 19. júlí, kl. 20
Listasafn Reykjavíkur
Ganga í samvinnu með Nýlistasafninu um sögu listamannarekinna rýma í Reykjavík. Hefst við Grófarhús.

Skúli Magnússon og Innréttingarnar, fimmtudaginn 26. júlí, kl. 20
Minjasafn Reykjavíkur
Í þessari göngu verður rætt um starfsemi Innréttinganna og hugmyndir Skúla Magnússonar. Bergsveinn Þórsson, safnfræðingur, leiðir gönguna. Hefst við Grófarhús.

Neðan-jarðar, fimmtudaginn 2. ágúst, kl. 20.
Borgarbókasafn Reykjavíkur
Borgarbókasafnið beinir augum niður á við og rannsakar neðanjarðarstarfsemi í skáldskap, sögu og sagnagerð. Didda leiðir gönguna. Hefst við Grófarhús.

Ljósmyndadagar um Laugardal, fimmtudaginn 9. ágúst, kl. 20
Ljósmyndsafn Reykjavíkur
Þorgrímur Gestsson leiðir göngu um Laugardalinn og rifjar upp minningar og sögur af fólki, húsakosti, ræktun og búskap. Hefst við aðalinngang Grasagarðsins.

HÍ101, fimmtudaginn 16. ágúst, kl. 20
Í boði allra safnanna
Menningarstofnanir Reykjavíkurborgar standa fyrir sameiginlegri kvöldgöngu þar sem fjallað verður um helstu mennta- og menningarstofnun Reykjavíkur og landsins alls: Háskóla Íslands. Lagt upp frá Grófarhúsi.
Tilbaka