Fornleifauppgröftur á Alþingisreit

Í sumar stendur yfir fornleifarannsókn í miðbæ Reykjavíkur á hinum svokallaða Alþingisreit, á horni Tjarnargötu og Vonarstrætis. Rannsóknin er  framhald af uppgrefti frá árunum 2008-2009 þar sem grafið var um 2000 fermetra svæði og minjar allt frá landnámi til okkar daga komu í ljós. Um 300 fermetra svæði var þá skilið eftir sem verður nú rannsakað að fullu.

Hluti af verkefni sumarsins verður að miðla því sem fer fram á svæðinu og verður meðal annars boðið upp á leiðsagnir um svæðið í fylgd þeirra sem starfa við uppgröftinn. Markmiðið er að auka sýnileika rannsóknarinnar og varpa ljósi á minjarnar sem þar kunna að leynast og samhengi þeirra við aðrar minjar í miðbæ Reykjavíkur.

Fyrsta leiðsögn sumarsins fer fram sunnudaginn 10. júní, klukkan 14:00. Þar mun Vala Garðarsdóttir, stjórnandi fornleifarannsóknarinnar, fræða áhugasama um uppgröftinn. Leiðsögnin hefst fyrir utan Landnámssýninguna Reykjavík 871±2 við Aðalstræti 16 og verður á íslensku.
Í framhaldi af því verður boðið upp á leiðsagnir á íslensku alla sunnudaga í sumar, klukkan 14:00. Þar að auki verða leiðsagnir á ensku á hverjum virkum degi klukkan 11:00 út ágúst.

Miðlun rannsóknarinnar er samstarfsverkefni Alþingis, sem kostar uppgröftinn, og Minjasafns Reykjavíkur, sem rekur Landnámssýninguna í Aðalstræti.

Hægt er að fylgjast nánar með gangi mála á Facebook síðu verkefnisins.

Kampakátir fornleifafræðingar að störfum



Tilbaka




Senda Prenta Senda á Facebook