Friðaðar kirkjur í Reykjavík

Útskorin tafla eftir Filippo Noflaner, gefin kirkjunni 1936 af Píusi páfa XI. Ljósm.: Ívar Brynjólfsson, ÞjmsÍ tilefni þess að komin eru út tvö bindi í ritröðinni Kirkjur Íslands, sem fjallar um friðaðar kirkjur í Reykjavíkurprófastsdæmum, bjóða Húsafriðunarnefnd, Þjóðminjasafn Íslands, Biskupsstofa, Minjasafn Reykjavíkur og Hið íslenska bókmenntafélag til málstofu og opnunar sýningar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur þriðjudaginn 5. júní  2012 kl. 16.00.
 

Friðaðar kirkjur í Reykjavík. 

1. Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey:
Fornar kirkjur í Reykjavík.
2. Þorsteinn Gunnarsson arkitekt:
Uppdrættir að Dómkirkjunni og Viðeyjarkirkju.
3. Júlíana Gottskálksdóttir listfræðingur:
Fríkirkjan í Reykjavík.
4. Gerður Róbertsdóttir sagnfræðingur:
Nokkrir gripir, fornir og nýir, í friðuðum kirkjum í Reykjavík.
5. Pétur H. Ármannsson arkitekt:
Þrjár merkar steinsteypukirkjur í Reykjavík.

Að erindum loknum mun biskup Íslands herra Karl Sigurbjörnsson opna sýningu um kirkjur, gripi og minningarmörk sem byggir á ritverkinu.

Fundarstjóri er Guðný Gerður Gunnarsdóttir borgarminjavörður.

Kirkjur Íslands er grundvallarrit um friðaðar kirkjur á Íslandi þar sem horft er á þær frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu. Í máli og myndum er fjallað um kirkjurnar sjálfar ásamt kirkjugripum og minningarmörkum. Kirkjur Íslands eru glæsilegar listaverkabækur sem opna sýn inn í mikilvægan þátt í íslenskri menningarsögu. Til útgáfunnar var stofnað í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku á Ísland. Áætlað er að bókaflokkurinn verði 27 bindi og útgáfunni ljúki 2016.

Að útgáfunni standa Húsafriðunarnefnd, Þjóðminjasafn Íslands og Biskupsstofa. Meðútgefandi og dreifingaraðili er Hið íslenska bókmenntafélag.  

Allir velkomnir.

 



Tilbaka




Senda Prenta Senda á Facebook