Handverksdagur Heimilisiðnaðarfélagsins á Árbæjarsafni
Sunnudaginn 3. júní verður hinn árlegi handverksdagur Heimilisiðnaðarfélags Íslands á Árbæjarsafni. Venju samkvæmt munu félagsmenn sýna margvíslegt handverk eins og útsaum, baldýringu, knipl, perlusaum, tóvinnu, spjaldvefnað, rússneskt hekl og sauðskinnsskógerð.
Formleg dagskrá Heimilisiðnaðardagsins hefst kl. 13.
Á Kornhúsloftinu verður útskriftarsýningu nemenda Heimilisiðnaðarskólans.
Einnig verður Þjóðbúningastofa með kynning á þjóðbúningum í Líkn.
Allir sem mæta á íslenskum búningi fá ókeypis inn
Tilbaka