Safnanótt - 10. febrúar

sma_kvoldvakaÁ safnanótt mun Árbæjarsafn endurskapa horfinn heim, með kvöldvöku á baðstofuloftinu í Árbæ. Þar situr fólk við daufa birtu og stritar við að kemba, spinna og prjóna og húsbóndinn kveður rímur fyrir heimilisfólkið.

Kvöldvakan var forðum fastur liður í lífi fólks yfir veturinn. Þegar verkefnum dagsins sleppti og rökkrið færðist yfir settist fólk að vinnu í baðstofunni. Einkum fékkst fólk við tóskap, auk þess sem menn brugðu í reipi, rökuðu gærur eða fengust við annað það sem mikilvægt þótti til heimilisþarfa.

Á safnanótt verður boðið upp á leiðsagnir á Árbæjarsafni, með reglulegu millibili frá klukkan 20.00, þar sem gestum gefst kostur á að ganga inn í fortíðina og upplifa stemninguna á íslenskri kvöldvöku. Steindór Andersen kveður rímur.

 



Tilbaka




Senda Prenta Senda á Facebook