Aukin þjónusta Árbæjarsafns yfir veturinn
Frá og með 2. janúar 2012 verður breyting á þjónustu Árbæjarsafns, en þá verður boðið upp á leiðsagnir alla daga klukkan 13.00 - bæði virka daga og um helgar.
Einnig er athygli vakinn á því að verðskrá safnsins hækkar um áramótin. Aðgangseyrir fyrir fullorðinn er nú 1100 kr.
Eftir sem áður er safnið opið utan þessa tíma eftir samkomulagi og hægt er að panta leiðsögn með því að hringja í síma 411-6304 eða senda póst á netfangið minjasafn@reykjavik.is

Tilbaka