Sýning í tilefni þess að 300 ár eru liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar

Innrettingar_2011Þann 12. desember eru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. Af því tilefni verður opnuð sýningin Hinar nýju innréttingar. Skúli Magnússon og Reykjavík 18. aldar á Minjasafni Reykjavíkur.


Skúli var í hópi boðbera nýjunga í atvinnulífi hér á landi um miðja 18. öld og einn af frumkvöðlum við stofnun Innréttinganna svo kölluðu, sem höfðu það að markmiði að efla landshagi á Íslandi með margvíslegum umbótum í atvinnulífi. Mikil áhersla var lögð á umbætur í jarðrækt og akuryrkju, en einnig að efla aðrar grunnstoðir landshaganna, fiskveiðar, skipasmíðar, kaðlagerð, vefnað, sútun og námavinnslu, svo nokkuð sé nefnt. Umsvifin voru bæði mikil og fjölbreytt og höfðu ýmsir þættir varanleg áhrif – ekki hvað síst í Reykavík.
 
Sýningin byggir á nýlegum fornleifa- og sagnfræðirannsóknum og þar eru til sýnis munir og skjöl sem varpa ljósi á starfsemi Innréttinganna og upphaf þéttbýlis í Reykjavík. Sýningin er samstarfsverkefni Minjasafns Reykjavíkur og Þjóðskjalasafns Íslands, unnin með framlagi frá Reykjavíkurborg og styrk frá Þjóðhátíðarsjóði. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs opnar sýninguna.
 
Á komandi vikum mun verður boðið upp á fleiri viðburði er tengjast Skúla Magnússyni og sögu Reykjavíkur á 18. öld, meðal annars leiðsagnir og málþing.



Tilbaka




Senda Prenta Senda á Facebook