Menningarlandslag í Reykjavík

Með hugtakinu menningarlandslag er átt við það landslag eða umhverfi sem maðurinn hefur mótað með búsetu sinni hverju sinni. Í Reykjavík hafa fundist minjar um búsetu frá því á 9. öld og ber því fornleifum saman við ritheimildir um að hingað hafi fluttst fólk á þeim tíma sem nefnt er landnámsöld.

Nesið sem borgin stendur á hefur mótast af búsetu í margar aldir og hver kynslóð hefur markað sín spor í landið. Það umhverfi sem við þekkjum í dag er því manngert að miklu leyti. Þar má sjá margvísleg merki um búsetu; leifar bygginga, staði þar sem fanga hefur verið aflað og leiðir milli staða, en annað er falið í jörðu.


Meðal minjastaða í Reykjavík þar sem sjá má menningarlandslag má nefna Laugarnes, Kvosina í miðbæ Reykjavíkur, Skildinganes við Skerjafjörð, eyjarnar á Kollafriði, Elliðárdal, Þingnes við Elliðárvatn og jarðinar í austurhluta borgarinnar, Breiðholt, Keldur, Grafarholt og Reynisvatn. Hér má sjá nokkur skilti sem Minjasafn Reykjavíkur hefur komið að.

Lesa upplýsingar sem eru á skilti við Grásleppuskúrana við Ægissíðu

Lesa nánar um fyrirhugaðar breytingar á Grímsstaðaholti

Lesa upplýsingar sem eru á skilti við Höfða pdf skjal (Pdf 10,4 MB)

Lesa upplýsingar sem eru á skilti við Bernhöftstorfuna pdf skjal (Pdf 8,36 MB)

Lesa upplýsingar sem eru á skilti við Hallargarðinn pdf skjal (Pdf 7,2 MB)

Lesa upplýsingar sem eru á skilti við Mæðragarðinn pdf skjal (Pdf 4,64 MB)

Lesa upplýsingar sem eru á skilti í Hljómskálagarðinum pdf skjal (Pdf 4,2 MB)




Senda Prenta Senda á Facebook

Viðburðir

Teikning eftir Þorstein Gunnarsson arkitekt. 09.05.2012
Skúli Magnússon og Viðey - 12. maí 2012
Þann 12. desember síðastliðinn voru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. Af því tilefni er við hæfi að bregða upp svipmyndum af Skúla, verkum hans og samtíð, í því húsi sem hann lét reisa sem embættisbústað og flutti inn í með fjölskyldu sinni haustið 1755.
Stúlka og lamb 27.03.2012
Opnunartími um páska hjá Minjasafni Reykjavíkur
Með því að smella á titil þessarar fréttar má fræðast meira um opnunartíma Árbæjarsafns og Landnámssýningarinnar Reykjavík 871 +/-2.
husvernd_malthing 12.03.2012
Að gera upp hús - Málþing
Húsverndarstofa stendur fyrir málþingi um viðhald og endurbætur eldri húsa. 16. mars kl. 14:00 í Árbæjarsafni Öll hús þarfnast viðgerðar og viðhalds. Að gera upp hús er fag og krefst ígrundunar.
Fyrir utan Hábæ 07.03.2012
Sumarstörf á Árbæjarsafni
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um sumarstörf á Árbæjarsafni. Allar frekari upplýsingar um hvernig sótt er um má nálgast á þessari síðu hér http://reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-757/521_read-30509.

Skoða alla viðburði