Húsverndarstofa

Ráðgjöf um viðhald og viðgerðir eldri húsa

Ráðgjöf á Árbæjarsafni alla miðvikudaga frá kl. 16-18. Einnig á sama tíma í síma 411 6333.

• Húsverndarstofan er opin alla miðvikudaga frá kl. 16-18. Sérfræðingar frá Minjasafni Reykjavíkur og Húsafriðunarnefnd veita ráðgjöf til þeirra sem þess óska.

• Einnig veita þeir ráðgjöf á sama tíma í síma 411 6333. • Hægt er að skoða byggingartæknisögusýninguna og nýta sér Húsverndarstofuna, án ráðgjafar sérfræðinganna, þegar Minjasafn Reykjavíkur er opið; alla daga frá kl. 10 til 17 í júní, júlí og ágúst

• Tekið er á móti hópum til að skoða byggingartæknisögusýninguna eftir samkomulagi. Tímapöntun í husverndarstofa@reykjavik.is og síma 4116304

 • Kennarar í arkitektúr og á bygginga- og mannvirkjasviðum bæði iðn- og háskóla eru sérstaklega hvattir til að nýta sér Húsverndarstofuna í kennslu. Tímapöntun í husverndarstofa@reykjavik.is og síma 4116304.

Húsverndarstofan er rekin í samvinnu Húsafriðunarnefndar, Minjasafns Reykjavíkur og Iðunnar fræðsluseturs.

________________________________________

Styrkir úr húsverndarsjóði Reykjavíkurborgar

Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum. Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í umsókn:

1. Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
2. Tímaáætlun.
3. Kostnaðaráætlun.
4. Ljósmyndir af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmyndir ef þær eru til.

Frekari upplýsingar eru veittar í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni sem opin er á miðvikudögum frá kl. 16-18 og í síma 411 6333 á sama tíma. Umsóknum skal skila á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna á vef Skipulags- og byggingasviðs, www.skipbygg.is og vef Minjasafns Reykjavíkur www.minjasafnreykjavikur.is.

Umsóknareyðublöð liggja einnig frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14. Umsóknir skulu berast Skipulags- og byggingasviði Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, eða rafrænt á netfangið: skipulag@reykjavik.is í síðasta lagi 15. febrúar 2012. Vakin er athygli á því að styrkir sem úthlutað var 2011 og ekki hafa verið nýttir falla niður við úthlutun 2012.

PDF umsóknareyðublað fyrir styrk úr húsverndarsjóði Reykjavíkurborgar:  

________________________________________

Sýningin Húsagerð höfuðstaðar. Saga byggingartækninnar í Reykjavík 1840 -1940.

Sýningunni er skipt í þrjá hluta, hlaðin steinhús, timburhús og steypt hús fram til 1940. Á sýningunni eru sagt frá þeim samfélagsaðstæðum sem kölluðu á breytingar í húsagerð, nýjar vinnuaðferðir, notkun nýrra efna og verkfæra. Fjallað er sérstaklaega um steinbæina sem eru sérreykvísk húsagerð, sveitserhúsin sem eru einna íburaðmest og glæsilegust af reykvískum timburhúsum og steypt funkíshús þegar menn voru farnir að ná góðu valdi á steypu og járnbindingu. Sagt er frá þróun veitna og lagna í húsunum. Á sýningunni er einnig tímaás sem sýnir þróun húsa, ný verkfæri, efni og vinnuaðferðir svo eitthvað sé nefnt. Sýningin var sett upp árið 2006 í safnhúsinu Kjöthúsinu í samvinnu Minjasafns Reykjavíkur og Menntafélags byggingariðnaðarins með styrk frá Íbúðalánasjóði.

________________________________________

Húsverndarstofa - ráðgjöf viðgerðir og viðhald eldri húsa

Húsverndarstofan er fyrir húseigendur, iðnaðarmenn, arkitekta, námsmenn og allt áhugafólk um byggingarsögu og húsvernd. Húsverndarstofan hóf starfsemi árið 2007. Í Húsverndarstofunni er að finna safn bóka, tímarita og verklýsinga og lög og reglugerðir sem varða hús og húsvernd. Einnig eru sýninshorn af byggingarhlutum sem framleiddir eru núna og henta í gömul hús, upplýsingar um hvar hægt er að nálgast þá og í hvernig hús þeir hæfa.

________________________________________

Leiðbeiningarit Húsafriðunarnefndar

Trégluggar (PDF Stærð skjals 7,53 MB)

Gömul tréhús, útveggir, grind og klæðning (PDF Stærð skjals 3,05 MB)

Steinuð hús. Varðveisla, viðgerðir, endurbætur og nýsteining (PDF Stærð skjals 6,26 MB)

Uppmæling húsa (PDF Stærð skjals 10,12 MB)

Ágrip af byggingarsögu (PDF Stærð skjals 1,25 MB)

Húsakannanir

Listi yfir útgefnar húsakannanir:

Húsafriðunarnefnd: Upplýsingar um styrki fyrir húseigendur:

Húsafriðunarsjóður: Húsverndasjóður Reykjavíkurborgar:

________________________________________

Ganglegir tenglar

Húsafriðunarnefnds ríkisins

Iðan-fræðslusetur

Byggingar- og skipulagsfulltrúa í Reykjavík

Skipulagsfulltrúar á Íslandi - hjá Skipulagsstofnun

Arkitektafélag Íslands

 Fornverkaskólinn

Þjóðminjasafn Íslands

 Önnur norræn lönd

 Riksantikvaren i Norge

Riksantikvarieämbetet i Sverige

 Kulturarvstyrelsen í Danmark

Stofnanir áhugamanna um húsvernd

Documentation and Conservation of buildings, sites and neighborhoods of the Modern Movement (DOCOMOMO)

Fortidsminneforeningen i Norge

Leiðbeiningar um viðgerðir og endurbætur / byggingartækni

 Bygningskultur Danmark:

Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins

Norsk byggeskikk og arkitektur

Gautarborgarháskóli - forvasla

Gautarborgarháskóli

Efni / byggingarhlutir sem henta í gömul hús

Gysinge centrum för byggnadsvård:

Bygg igen - byggingarvörur eftir flokkum

Claessons Trätjära - trétjara, olíur, málning og fleiri vörur

Byggfabriken byggnadsvård - renovering:

Alt om gamle hus - Allt um gömul hús, norsk heimasíða.




Senda Prenta Senda á Facebook

Viðburðir


Árbær í vetrarbúningi

Aukin þjónusta Árbæjarsafns yfir veturinn | 30.12.2011

Frá og með 2. janúar 2012 verður breyting á þjónustu Árbæjarsafns, en þá verður boðið upp á leiðsagnir alla daga klukkan 13.00 - bæði virka daga og um helgar. Eftir sem áður er safnið opið utan þessa tíma eftir samkomulagi og hægt er að panta leiðsögn með því að hringja í síma 411-6304 eða senda póst á netfangið minjasafn@reykjavik.is


Innrettingar_2011

Sýning í tilefni þess að 300 ár eru liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar | 14.12.2011

Þann 12. desember eru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. Af því tilefni verður opnuð sýningin Hinar nýju innréttingar. Skúli Magnússon og Reykjavík 18. aldar á Minjasafni Reykjavíkur.


jolasyning

Bráðum koma blessuð jólin ... | 15.11.2011

Jólasýning Árbæjarsafns hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hlotið fastan sess í menningarlífi höfuðborgarinnar á aðventunni. Að þessu sinni verður dagskrá sunnudagana 4., 11. og 18 desember frá kl. 13 til 17.

Skoða alla viðburði