Fornleifavernd í Reykjavík

Fornleifaskrá

Minjasafn Reykjavíkur heldur skrá yfir allar þekktar fornleifar í landi Reykjavíkur en samkvæmt lögum er skylt að skrá fornleifar og gera könnun á eldri byggð þegar unnið er að skipulagi.
Fornleifaskráning er í raun skilyrði þess að hægt sé að vinna markvisst að varðveislu fornleifa.
Fornleifaskrá Reykjavíkur var fyrst gefin út árið 1995 og innihélt hún um 200 minjastaði, en stöðugt er unnið að endurskoðun hennar og í dag (2011) hefur hún að geyma skrá yfir um 2000 minjastaði. Allar fornleifar eru skráðar í menningarsögulegan gagnagrunn sem ber heitið Sarpur auk þess sem staðsetning þeirra er sjáanleg í Borgarvefsjá.

Vefsíða um Sarp

Fara á vef Borgarvefsjár


Í Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 birtist stefna borgaryfirvalda um varðveislu menningarminja, bæði fornleifa og bygginga. Fornleifar sem er að finna á fornleifaskrá eru merktar á skipulagskort í þemaheftinu Umhverfi og útivist

Fornleifaskýrslur

Minjasafn Reykjavíkur hefur gefið út skýrslur um fornleifar í Reykjavík. Þær má nálgast í pdf formi hér á vefnum en einnig á Borgarvefsjá þar sem hægt er að skoða yfirlitsmynd sem sýnir hvar fornleifar eru skráðar í Reykjavík. Skoða skýrslur

Fornleifaeftirlit

Borgarminjavörður sinnir framkvæmdaeftirliti á minjastöðum í Reykjavík. Markmiðið með framkvæmdaeftirliti er að er að koma í veg fyrir að minjar fari forgörðum við verklegar framkvæmdir. Við minniháttar framkvæmdir eða framkvæmdir sem ekki falla undir mat á umhverfisáhrifum er haft samstarf við þá sem sjá um framkvæmdirnar. Minjasafn Reykjavíkur hefur eftirlit með jarðraski og skráir upplýsingar um mannvistarminjar sem koma í ljós. Allar upplýsingar um minjarnar eru færðar inn á uppdrætti. Mikilvægt er því að fylgjast vel með framkvæmdum og á það sérstaklega við um miðbæinn og svæði í grennd við forn bæjarstæði. Ef vart verður við fornleifar er framkvæmd stöðvuð og svæðið rannsakað nánar eða framkvæmdum breytt þannig að þær skerðist ekki. Á vef Borgarvefsjár eru þekktar fornleifar í borgarlandinu merktar inn á kort.

Fara á vef Borgarvefsjár

Umhverfismat

Þegar unnið er mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmda eða skipulagsáætlana er skráning á fornleifum einn þeirra þátta sem þarf að liggja fyrir. Mikilvægt er að tekið sé tillit til fornleifa strax á fyrsta stigi hönnunar eða skipulags, því þannig má koma í veg fyrir rask á fornleifum og forðast ófyrirséðan kostnað vegna fornleifarannsókna sem geta leitt til að breyta þarf hönnun mannvirkja. Framkvæmdaraðili eða skipulagsaðili sér til þess að þessi vinna sé unnin en Fornleifavernd ríksins er umsagnaraðili.

Fornleifarannsóknir og sýningar

Minjasafn Reykjavíkur hefur staðið fyrir umfangsmiklum fornleifarannsóknum í Reykjavík og má þar nefna rannsóknir í miðbæ Reykjavíkur á árunum 1971-1975 og við Aðalstræti árið 2001 ásamt rannsóknum í Viðey á árunum 1987-1995. Við þessar rannsóknir hafa komið í ljós mannvistarleifar sem varpa mikilvægu ljósi á sögu Reykjavíkur. Mikilvægur hluti minjavörslu er að fræða almenning um menningarminjar í borginni og því er leitast við að gera afrakstur þeirra aðgengilegar fyrir almenning. Niðurstöður rannsókna safnsins birtast í ritum og í sýningum á vegum safnsins.

Skoða skýrslur
Landnámssýningin Reykjavík 871±2
Frá býli til borgar







Senda Prenta Senda á Facebook

Viðburðir


kjarval

Kjarval og Gullmávurinn á ferð og flugi | 22.04.2013

Sýning Listasafns Reykjavíkur Kjarval og Gullmávurinn verður á Árbæjarsafni miðvikudaginn 24. apríl kl. 11:00.


hadegisganga_2013

Hádegisganga um Kvosina | 16.04.2013

Næstkomandi föstudag 19. apríl kl 12:00-13:00, bjóða Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur upp á hádegisgöngu um Kvosina undir leiðsögn Guðmundar Ingólfssonar ljósmyndara og Guðnýjar Gerðar Gunnarsdóttur borgarminjavarðar.


Kjothus

Námskeið fyrir húsamiði: Viðhald og viðgerðir gamalla húsa | 06.03.2013

Þetta námskeið er fyrir alla sem ætla sér að vinna við viðhald og viðgerðir á gömlum timburhúsum. Fjallað er um undirstöður og burðarvirki og farið yfir frágang bæði utan og innan húss. Skoðuð eru gömul timburhús sem hafa verið endurbyggð.

Skoða alla viðburði