Um sýninguna
Reykjavík 871±2 fjallar um landnám í Reykjavík. Sýningin byggir á kenningum fræðimanna um það sem fornleifar í Reykjavík geta sagt okkur um líf og störf þeirra sem fyrst settust hér að. Miðpunkturinn er rúst skála frá 10. öld sem fannst árið 2001. Búið var í skálanum frá því um 930 til 1000. Norðan við skálann fannst veggjarbútur sem er ennþá eldri, eða frá því um 871 og eru það elstu mannvistarleifar sem fundist hafa á Íslandi.
Heiti sýningarinnar
Reykjavík 871±2 vísar til þess að landnámsgjóskulag féll yfir landið árið 871 en ártalinu gæti skeikað um tvö ár, af eða á. Gjóskan barst með vindum frá eldstöðvum á Torfajökulsvæðinu en gegnir nú lykilhlutverki þegar tímasetja á minjar frá upphafi byggðar í Reykjavík.
Hvernig var Reykjavík fyrir 1100 árum?
Á sýningunni er reynt að gefa hugmynd um umhverfi Reykjavíkurbæjarins eins og það var við landnám. Skálarústin er varðveitt á sínum upphaflega stað og er miðpunktur sýningarinnar. Einnig eru sýndir munir sem fundust í rústinni og munir sem fundust við fornleifauppgröft í Suðurgötu, Tjarnargötu og í Viðey , en á þessum stöðum hafa einnig fundist ýmsar minjar frá landnámstíma. Tilgátumyndir af landslagi og gróðurfari á 10. öld eru á veggjum umhverfis rústina.
Lífið á landnámsöld
Skálarústin er skýrð með nýstárlegri marmiðlunartækni. Í tilgátuglugga má kalla fram þrívíða tilgátumynd af því hvernig skálinn var á sínum tíma og jafnframt er byggingartækni hans skýrð. Á margmiðlunarborði er mynd af rústinni þar sem gestir geta sótt margvíslegar upplýsingar um fornleifafræði og hvað eina sem lýtur að upphaflegri gerð hússins, lífi og starfi sem í því var. Á samanburðarskjám má fræðast um skyldleika ýmissa menningarþátta þjóða við Norður-Atlantshaf og landnám og útrás víkinga.
Ýmsum spurningum er varpað fram á sýningunni og leitað svara við þeim: Hvers vegna settist fólk hér að? Hvernig var umhverfið? Á hverju lifði fólk? Hverjir bjuggu í skálanum? Við sumum spurninganna fæst svar en öðrum ekki og sýningargesturinn verður að virkja eigið ímyndunarafl.
Í tölvuveri í anddyri er boðið upp á margvíslegt ítarefni um viðfangsefni sýningarinnar. Einnig var gefin út vegleg sýningarskrá.
Nánar um margmiðlunartækni sýningarinnar:
Art+Com
Gagarín