Veitingasala Árbæjarsafni
Dillonshús hýsir veitingarekstur safnsins yfir sumarmánuðina og gefst gestum kostur á að kaupa þar kaffiveitingar á opnunartíma safnsins frá 11 - 5.
Mögulegt er að fá húsið leigt með veitingum í gegnum rekstraraðila þess og í samráði við safnið.
Frekari upplýsingar veitir Sólveig Kristín Jónsdóttir í síma 411 6304 og á netfanginu solveig.kristin.jonsdottir@reykjavik.is
Dillonshús var reist árið 1853 á horni Túngötu og Suðurgötu. Húsið dregur nafn sitt af þeim manni sem lét smíða það, Arthur Dillon, en hann kom til Íslands árið 1834. Dillonshús var flutt á Árbæjarsafn árið 1961 og hefur hýst veitingasölu safnsins síðan.