Bráðum koma blessuð jólin

Jólasýning Árbæjarsafns hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hlotið fastan sess í menningarlífi höfuðborgarinnar á aðventunni. Ungir sem aldnir geta haft gaman af að rölta milli húsanna og fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga og kíkja í potta, börn og fullorðnir fá að föndra, syngja jólalög og ferðast um á hestvagni.
Í Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð en uppi á baðstofulofti er spunnið og prjónað. Þar er einnig jólatré vafið lyngi. Í Kornhúsinu fá börn og fullorðnir að föndra, búa til músastiga, jólapoka og sitthvað fleira. Í Garðastræti er sýnt hvernig fólk bjó til tólgarkerti og kóngakerti í gamla daga. Í Hábæ verður hangikjötið komið í pottinn og gestum boðið að bragða á nýsoðnu keti en í stofunni er sýndur útskurður. Í Efstabæ er jólaundirbúningurinn kominn á fullan skrið og skatan komin í pottinn. Jólahald heldra fólks við upphaf síðustu aldar er sýnt í Suðurgötu 7. Í Listmunahorninu verður sýnt þjóðlegt handverk og Krambúðin verður með kramarhús, konfekt og ýmsan jólavarning til sölu. Dillonshús býður upp á ljúffengar veitingar, heitt súkkulaði og jólalegt meðlæti. Dansað er í kringum jólatréð á torginu kl. 15 og eru gestir hvattir til að taka þátt. Jólasveinar, þessir gömlu íslensku, verða á vappi um safnsvæðið hrekkjóttir og stríðnir að vanda og taka þeir þátt í dansi kringum jólatréð.