Minningar úr húsi


Frá sýningunni í LíknÁ efri hæð Líknarhússins er til sýnis hluti af búslóð sem var í húsinu Laufásvegi 43, húsi Vigfúsar Guðmundssonar búfræðings úr Engey og Sigríðar Halldórsdóttir. Búslóðin var tekin niður árið 1999 og sett upp til að gefa innsýn í heimili reykvíkskra borgara á fyrri hluta 20. aldar.


Húsið Laufásvegur 43 var byggt árið 1903 af Jóni Eiríkssyni steinsmið. Heimilið var einstakt vegna þess að sama fjölskyldan bjó í húsinu í tæpa átta áratugi. Húsinu hafði lítið verið breytt í tímans rás og fyrirkomulag, húsbúnaður og innréttingar með svipuðu sniði hjá báðum kynslóðunum sem þar bjuggu.

Árið 1995 eignaðist Reykjavíkurborg Laufásveg 43 með það fyrir augum að opna þar sýningu. Ekki varð af því að húsið væri opnað almenningi en Árbæjasafn sýnir hluta af þeirri búslóð sem í húsinu var og myndir af niðurtöku hennar. Hefur gripum verið komið fyrir sem líkast því sem var á hinum upprunalega stað og gefur sýningin því góða innsýn á heimili í Reykjavík á öndverðri 20. öld. Sýningin opnaði árið 2001.

 

 

 

Viðburðir


kjarval

Kjarval og Gullmávurinn á ferð og flugi | 22.04.2013

Sýning Listasafns Reykjavíkur Kjarval og Gullmávurinn verður á Árbæjarsafni miðvikudaginn 24. apríl kl. 11:00.


hadegisganga_2013

Hádegisganga um Kvosina | 16.04.2013

Næstkomandi föstudag 19. apríl kl 12:00-13:00, bjóða Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur upp á hádegisgöngu um Kvosina undir leiðsögn Guðmundar Ingólfssonar ljósmyndara og Guðnýjar Gerðar Gunnarsdóttur borgarminjavarðar.


Kjothus

Námskeið fyrir húsamiði: Viðhald og viðgerðir gamalla húsa | 06.03.2013

Þetta námskeið er fyrir alla sem ætla sér að vinna við viðhald og viðgerðir á gömlum timburhúsum. Fjallað er um undirstöður og burðarvirki og farið yfir frágang bæði utan og innan húss. Skoðuð eru gömul timburhús sem hafa verið endurbyggð.

Skoða alla viðburði