Í húsi Krists og kappleikja

 

I_husi_krist_storÁ sýningunni Í húsi Krists og kappleikja er gerð grein fyrir hinum tveimur ólíku köflum í sögu hússins. Fyrstu 30 árin var það kaþólskt guðshús en árið 1929 þegar reist hafði verið ný kirkja var ákveðið að Íþróttafélag Reykjavíkur fengi húsið að gjöf og starfaði það þar næstu 70 árin.
Á sýningunni má annars vegar sjá meðal annars steindan glugga frá árinu 1896 sem var einskonar altarismynd kirkjunnar og sýnir Jesú Krist og hið heilaga hjarta og hins vegar ýmsa gripi sem tengjast frjálsíþróttaiðkun ÍR-inga í húsinu.

Viðburðir


kjarval

Kjarval og Gullmávurinn á ferð og flugi | 22.04.2013

Sýning Listasafns Reykjavíkur Kjarval og Gullmávurinn verður á Árbæjarsafni miðvikudaginn 24. apríl kl. 11:00.


hadegisganga_2013

Hádegisganga um Kvosina | 16.04.2013

Næstkomandi föstudag 19. apríl kl 12:00-13:00, bjóða Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur upp á hádegisgöngu um Kvosina undir leiðsögn Guðmundar Ingólfssonar ljósmyndara og Guðnýjar Gerðar Gunnarsdóttur borgarminjavarðar.


Kjothus

Námskeið fyrir húsamiði: Viðhald og viðgerðir gamalla húsa | 06.03.2013

Þetta námskeið er fyrir alla sem ætla sér að vinna við viðhald og viðgerðir á gömlum timburhúsum. Fjallað er um undirstöður og burðarvirki og farið yfir frágang bæði utan og innan húss. Skoðuð eru gömul timburhús sem hafa verið endurbyggð.

Skoða alla viðburði