Blessað stríðið
Þann 10. maí árið 1940 hernámu Bretar Ísland og rúmu ári síðar tóku Bandaríkjamenn við hervernd á landinu. Koma herliðsins hafði í för með sér gífurlegar breytingar á íslensku samfélagi, ekki síst í Reykjavík. Vorið 2010 var opnuð ný sýning á vegum Árbæjarsafns í Kornhúsinu þar sem fjallað er um áhrif hernámsins á daglegt líf í Reykjavík.
Í húsi Krists og kappleikja
Á sýningunni Í húsi Krists og kappleikja, sem opnaði árið 2008 í Landakoti, er gerð grein fyrir hinum tveimur ólíku köflum í sögu hússins. Fyrstu 30 árin var það kaþólskt guðshús en árið 1929 þegar reist hafði verið ný kirkja var ákveðið að Íþróttafélag Reykjavíkur fengi húsið að gjöf og starfaði það þar næstu 70 árin.
Komdu að leika
Sýningin Komdu að leika fjallar um leiki og leikföng barna í Reykjavík á 20. öld. Varpað er ljósi á fjölbreytileika og þróun leikfanga og hvernig leikir endurspegla samfélagið á hverjum tíma. Sýningin var opnuð árið 2008 og er í Landakoti.
Ull í fat- íslensk tóvinna fyrr og nú
Sýningin Ull í fat- íslensk tóvinna fyrr og nú var opnuð í Líknarhúsinu í Árbæjarsafni 8. júní
Sýningin er samvinnuverkefni Minjasafns Reykjavíkur og Heimilisiðnaðarfélags Íslands.
Íslenski kvenþjóðbúningurinn.
Minjasafn Reykjavíkur hefur í samvinnu við Þjóðbúningaráð sett upp sýningu á íslenskum þjóðbúningum kvenna . Sýningin, sem opnaði í júní 2010, er í safnahúsinu Líkn sem er við torgið á Árbæjarsafni.
Á sýningunni er meðal annars hægt að fræðast um heiti á einstaka búningahlutum og sjá myndir af mismunandi búningum . Þar er einnig sýndur faldbúningur, skautbúningur, kyrtil, peysuföt ásamt 19.- og 20 aldara upphlutum.
Húsagerð höfuðstaðar 1840–1940
Á sýningunni er farið yfir sögu húsagerðar og byggingartækni í Reykjavík á tímabilinu 1840–1940. Sýningunni er skipt upp í þrjá hluta. Í fyrsta hlutanum eru tekin fyrir hlaðin steinhús, í öðrum hlutanum er fjallað um timburhús en þriðji hlutinn er tími steinsteypunnar. Sýningin var opnuð árið 2006 og er í safnhúsinu Kjöthúsinu.
Bráðum koma blessuð jólin
Jólasýning Árbæjarsafns hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hlotið fastan sess í menningarlífi höfuðborgarinnar á aðventunni. Þar má fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga.
Minningar úr húsi
Á efri hæð í Líknarhúsinu er til sýnis hluti af búslóð sem var í húsinu Laufásvegi 43. Búslóðin var tekin niður árið 1999 og sett upp árið 2001 á Árbæjarsafni. Sýningin gefur innsýn í heimili reykvískra borgara á fyrri hluta 20. aldar. Heimilið að Laufásveg 43 var einstakt vegna þess að sama fjölskyldan bjó í húsinu í tæpa átta áratugi. Húsinu hafði lítið verið breytt í tímans rás og fyrirkomulag, húsbúnaður og innréttingar með svipuðu sniði hjá báðum kynslóðunum sem þar bjuggu.
Lifað og leikið
Sýning Lifað og leikið var sett upp í safnhúsinu Þingholtsstræti 9 árið 2006.
Snikkarinn Helgi Jónsson reisti húsið árið 1846 og bjó þar ásamt fjölskyldu sinni. Synir hans, Jónas og Helgi, voru áberandi í tónlistarlífi Reykjavíkur. Á sýningunni er fjallað um íbúa hússins í gegnum tíðina og píuböllin sem þar voru haldin.
Saga Reykjavíkur - frá býli til borgar
Sýningin er grunnsýning safnsins og er ætlað að kynna gestum sögu Reykjavíkur frá upphafi byggðar og fram á 20. öld. Sýningin er Lækjargötu 4 og var opnuð árið 2000.
Litla bílaverkstæðið
Sýningin er samstarfsverkefni Minjasafns Reykjavíkur - Árbæjarsafns og Bíliðnafélagsins/Félags blikksmiða. Sýningin var sett upp fyrri hluta ársins 2000 og er þar fjallað um helstu greinar bíliðna, bifvélavirkjun, bílasmíði og bílamálun.
Listmunahorn
Listmunahornið er innaf Krambúðinni í Lækjargötu 4.
Þar eru settar upp sýningar á íslensku handverki og listiðnaði með reglulegu millibili.