Landnámssýningin

Reykjavik 871

Á sýningunni er fjallað um landnám í Reykjavík og byggt er á fornleifarannsóknum sem fram hafa farið í miðbænum. Miðpunktur sýningarinnar er skálarúst frá 10. öld, sem fannst þegar grafið var fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis og Túngötu. Búið var í skálanum frá því um 930 til 1000. Norðan við skálann fannst veggjarbútur sem er ennþá eldri, eða frá því um eða fyrir 871 og eru það elstu mannvistarleifar sem fundist hafa á Íslandi.

Landnámssýningin Reykjavík 871±2 er staðsett í miðbæ Reykjavíkur, Aðalstræti 16. Sjá kort.

Margmiðlunartækni er notuð til að útskýra byggingarlag húsa á víkingaöld. Einnig er hægt að skyggnast inn í skálann með hjálp tölvutækni og ímynda sér hvernig lífi heimilsfólksins var háttað.

Á sýningunni er reynt að gefa hugmynd um umhverfi Reykjavíkur eins og það var við landnám. Einnig eru sýndir munir sem fundist hafa við fornleifauppgröft í miðbæ Reykjavíkur. Hér má sjá upplýsingar um muni sem eru á sýningunni.

Boðið er upp á leiðsagnir fyrir skólahópa á öllum skólastigum. Einnig er hægt að panta leiðsagnir fyrir hópa eftir samkomulagi. Panta þarf leiðsagnir með fyrirvara. Panta þarf leiðsögn fyrir hópa í síma 411 6370 eða á tölvupóstfangið: landnam(hjá)reykjavik.is

 




Senda Prenta Senda á Facebook

Reykjavik 1786

Viðburðir


Thjodbuningar

Þjóðhátíðargleði í Árbæjarsafni | 14.06.2013

Í Árbæjarsafni verða fallegir þjóðbúningar í aðalhlutverki 17. júní og eru gestir hvattir til að mæta í eigin búningum. Fjallkonu safnsins verður skautað kl. 14 og geta gestir fylgst með því hvernig faldur, faldblæja og spöng eru sett upp og borin við skautbúning.


kirkja

Trúarleg tákn á Árbæjarsafni 16. júní. | 13.06.2013

Sunnudaginn 16. júní kl. 13.00 verður Hjalti Hugason prófessor í kirkjusögu við Háskóla Íslands með leiðsögn um Árbæjarsafn þar sem sem trúarleg tákn í safnhúsunum verða skoðuð.


handverksdagur_2013

Handverksdagur Heimilisiðnaðarfélags Íslands | 06.06.2013

Sunnudaginn 9. júní verður hinn árlegi Handverksdagur Heimilisiðnaðarfélags Íslands á Árbæjarsafni. Dagurinn hefur notið mikilla vinsæla undanfarin ár, enda margt áhugavert og fallegt sem ber þar fyrir sjónir.

Skoða alla viðburði