Árbæjarsafn

Árbær var rótgróin bújörð allt fram á 20. öld, en safnið var opnað þar árið 1957. Árbæjarsafn er útisafn og auk Árbæjar eru þar yfir 20 hús, sem mynda torg, þorp og sveit. Flest húsin hafa verið flutt úr miðbæ Reykjavíkur.

Í Árbæjarsafni er leitast við að gefa hugmynd um byggingalist og lifnaðarhætti í Reykjavík og á sumrin má þar sjá húsdýr og mannlíf fyrri tíma.Í safninu er boðið upp á fjölda sýninga og viðburða, þar sem einstökum þáttum í sögu Reykjavíkur eru gerð skil. Þar má nefna handverksdaga, fornbílasýningu, jólasýningu og margt fleira. Allir eiga að finna eitthvað við sitt hæfi í Árbæjarsafni.

Smellið hér til að sjá kort yfir safnsvæði.

Sumardagskrá safnsins fyrir sumarið 2011 má skoða hér (pdf skjal341 kb).




Senda Prenta Senda á Facebook

Viðburðir


Kvoldvaka_safnanott

Safnanótt - 10. febrúar | 07.02.2012

Á safnanótt mun Árbæjarsafn endurskapa horfinn heim, með kvöldvöku á baðstofuloftinu í Árbæ. Þar situr fólk við daufa birtu og stritar við að kemba, spinna og prjóna og húsbóndinn kveður rímur fyrir heimilisfólkið.


Árbær í vetrarbúningi

Aukin þjónusta Árbæjarsafns yfir veturinn | 30.12.2011

Frá og með 2. janúar 2012 verður breyting á þjónustu Árbæjarsafns, en þá verður boðið upp á leiðsagnir alla daga klukkan 13.00 - bæði virka daga og um helgar. Eftir sem áður er safnið opið utan þessa tíma eftir samkomulagi og hægt er að panta leiðsögn með því að hringja í síma 411-6304 eða senda póst á netfangið minjasafn@reykjavik.is


Innrettingar_2011

Sýning í tilefni þess að 300 ár eru liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar | 14.12.2011

Þann 12. desember eru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. Af því tilefni verður opnuð sýningin Hinar nýju innréttingar. Skúli Magnússon og Reykjavík 18. aldar á Minjasafni Reykjavíkur.

Skoða alla viðburði