Menningarnótt á Minjasafni Reykjavíkur
Minjasafn Reykjavíkur býður upp á fjölbreytta dagskrá á Menningarnótt. Leikir barna á víkingaöld verða kynntir í Landnámssýningunni við Aðalstræti, minnst verður hernámsins 1940 með göngu um slóðir breska hernámsliðsins og starfsemi Húsverndarstofu verður kynnt í húsinu að Laugavegi 6, sem verið er að endurgera á vegum Völundarverks.
Víkingakrakkar í Reykjavík
Í Landnámssýningunni Reykjavík 871 +/- 2 , Aðalstræti 16, verður boðið upp á leiðsagnir fyrir yngri og eldri gesti safnsins. Yfir daginn býður Landnámssýningin öllum krökkum upp á leiðsögn um sýninguna í Aðalstræti, þar sem þau fá að fræðast um lífið á landnámsöld og hvað krakkar í þá daga voru að bralla. Auk leiðsagnarinnar verður farið í nokkra skemmtilega innileiki. Um kvöldið verður boðið upp á leiðsögn um sýninguna fyrir alla fjölskylduna, kl. 18, 20 og 22.
Landnámssýningin Reykjavík 871 +/-2 verður opin til miðnættis á Menningarnótt og er aðgangur ókeypis.
Hernámið 1940 –
Söguganga kl. 14

Söguganga í miðbæ Reykjavíkur verður farin kl. 14. Sigurlaugur Ingólfsson sagnfræðingur leiðir göngu um slóðir breskra hernámsmanna, sem stigu á land í Reykjavík fyrir 70 árum. Fjallað verður um hernámið á Íslandi og atburði sem áttu sér stað í Reykjavík á fyrstu dögum þess. Í lok göngu verður skoðuð sýningin Ísland og síðari heimsstyrjöldin í Aðalstræti 10.
Lagt verður af stað frá Grófarhúsi klukkan 14.00. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.
Húsverndarstofa að Laugarvegi 6 verður opin frá 13 -20.
Húsverndarstofan verður með útibú á Laugarvegi 6. Þar má fræðast um endurbætur og viðhald gamalla húsa. Sérfræðingar veita ráðgjöf um hvernig best er að bera sig að við undirbúning framkvæmda og allt annað sem lýtur að því að gera við gömul hús, svo sem tæknilegar útfærslur og litaval.
Minjasafn Reykjavíkur sinnir húsvernd á margvíslegan hátt. Safnið sinnir rannsóknum á byggingararfi í borginni, bæði einstaka húsum og hverfum og heldur húsaskrá Reykjavíkur þar sem er að finna upplýsingar um hús í Reykjavík. Niðurstöður rannsókna safnsins eru birtar í ritum um byggingarsögu og húsakönnunum sem gefnar eru út í skýrsluröð safnsins og gestum gefst kostur á að glugga í þær á Laugavegi 6. Húsverndarstofan, sem hefur alla jafna aðsetur á Árbæjarsafni, er samstarfsverkefni Minjasafns Reykjavíkur, Húsafriðunarnefnd og Iðunnar- fræðslusetur, sjá www.husverndarstofa.is
Borgarbúum gefst einnig kostur á að sjá húsin að Laugavegi 4 og 6 sem nú er verið að endurbæta á vegum Völundarverks, en það er átaksverkefni sem Reykjavíkurborg tekur þátt í ásamt samstarfsaðilum. Völundarverk hefur það að markmiðið að kenna iðnaðarmönnum og hönnuðum í atvinnuleit handverk og verklag í tengslum við viðhald og endurgerð sögufrægra gamalla húsa og/eða mannvirkja í Reykjavík.
Á hverju ári veitir Reykjavíkurborg viðurkenningar fyrir endurbætur eldri húsa og í gönguferð um Þingholtin verða skoðuð nokkur hús sem fengið hafa slíka viðurkenningu á undanförnum árum.
Lagt verður af stað frá Laugavegi 6 klukkan 15.00. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.
Tilbaka