Húsverndarstofa

Á síðasta ári var opnuð húsverndarstofa um endurbætur eldri húsa í Kjöthúsinu í Árbæjarsafni. Að Húsverndarstofunni standa Húsafriðunarnefnd ríkisins, Iðan fræðslusetur og Minjasafn Reykjavíkur. Þar liggur frammi fjölbreytt fræðsluefni sem kemur að gagni fyrir þá sem standa fyrir viðhaldi og endurbótum á eldri húsum, bæði húseigendur og fagmenn. Sérfræðingar á vegum Húsafriðunarnefndar ríkisins og Minjasafns Reykjavíkur verða með viðtalstíma í Húsverndarstofunni alla miðvikudaga frá kl. 16 til 18. Einnig veita þeir ráðgjöf á sama tíma í síma 411 6333.

Frá árinu 2000 hefur sögu byggingatækninnar verið gerð skil í Kjöthúsinu í Árbæjarsafni og fyrir tveimur árum var opnuð þar sýningin Húsagerð höfuðstaðar. Saga byggingartækninnar í Reykjavík 1840 -1940.

Heimasíða Húsverndarstofunnar má nálgast hér.

TIL baka

Árbæjarsafns

Opnunartími

1. september - 30. maí

Leiðsögn mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13:00. Tekið á mótum hópi eftir samkomulagi.

1. júní - 31. ágúst.

Opið frá kl. 10-17

Reykjavík 871 +/-2

Sýningin Reykjavík 871 er opin alla daga frá 10-17.

Reykjavík 871±2
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
Sími:411 6370

FACEBOOK

Minjasafn Reykjavíkur er nú búið að opna sína eigin Facebook síðu.

Facebook-breitt

Minjasafn ReykjavíkurÁrbæjarsafniKistuhyl110 ReykjavíkSími 411 6300minjasafn@reykjavik.is
grar fotur fotur