Menningarlandslag í Reykjavík

Með hugtakinu menningarlandslag er átt við það landslag eða umhverfi sem maðurinn hefur mótað með búsetu sinni hverju sinni. Í Reykjavík hafa fundist minjar um búsetu frá því á 9. öld og ber því fornleifum saman við ritheimildir um að hingað hafi fluttst fólk á þeim tíma sem nefnt er landnámsöld. Nesið sem borgin stendur á hefur mótast af búsetu í margar aldir og hver kynslóð hefur markað sín spor í landið. Það umhverfi sem við þekkjum í dag er því manngert að miklu leyti. Meðal minjastaða í Reykjavík þar sem sjá má menningarlandslag má nefna Laugarnes, Kvosina í miðbæ Reykjavíkur, Skildinganes við Skerjafjörð, eyjarnar á Kollafriði, Elliðaárdal, Þingnes við Elliðavatn og jarðirnar í austurhluta borgarinnar, Breiðholt, Keldur, Grafarholt og Reynisvatn.

Lesa upplýsingar sem eru á skilti við Grásleppuskúrana við Ægissíðu

Lesa nánar um fyrirhugaðar breytingar á Grímsstaðaholti



Menningarmerkinga í  Reykjavík

Menningar og ferðamálaráð  hefur staðið fyrir merkingum á menningarminjastöðum frá 2008. Skiltin eru öll með fróðleik um sögu og  auk gamalla mynda. Hönnuður skiltanna er Finnur Malmquist, Minjasafn Reykjavíkur hefur lagt til efni en myndir koma frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Þjóðminjasafni.

Höfði  pdf skjal (Pdf 10,4 MB)

Bernhöftstorfan pdf skjal (Pdf 8,36 MB)

Hallargarðurinn  pdf skjal (Pdf 7,2 MB)

Mæðragarðurinn  pdf skjal (Pdf 4,64 MB)

Hljómskálagarðurinn  pdf skjal (Pdf 4,2 MB)

Austurvöllur pdf skjal (Pdf 3 MB)

Ingólfsnaust pdf skjal (Pdf 3,4 MB)

Breiðholtsbærinn (Pdf 5,4 MB)

Í tilefni 50 ára afmælis Árbæjarsafns árið 2007 voru gerð upplýsingaskilti sem standa í heimtröðinni við Árbæ. Á skiltunum má fræðast um sögu Árbæjar í Mosfellssveit og einnig sögu Árbæjarsafns.

Upphaf Árbæjar pdf skjal (Pdf 1923 kb)

Árbær árið 1704 pdf skjal (Pdf 1777 kb)

Áfangastaður í alfaraleið pdf skjal (Pdf 1882 kb)

Árbær og býlin í kring pdf skjal (Pdf 447 kb)

Upphaf Árbæjarsafns pdf skjal (Pdf 1550 kb)

Vöxtur borgarinnar pdf skjal (Pdf 1847 kb)

Kirkjan og safnhúsin pdf skjal (Pdf 1469 kb)

Elliðaárdalur pdf skjal (Pdf 4149 kb)

Við Þvottalaugarnar í Laugardal er að finna upplýsingaskilti um störf þvottakvenna í Reykjavík forðum.

Þvottalaugaskilti pdf skjal (Pdf 3,1 MB)




Senda Prenta Senda á Facebook

Viðburðir


kjarval

Kjarval og Gullmávurinn á ferð og flugi | 22.04.2013

Sýning Listasafns Reykjavíkur Kjarval og Gullmávurinn verður á Árbæjarsafni miðvikudaginn 24. apríl kl. 11:00.


hadegisganga_2013

Hádegisganga um Kvosina | 16.04.2013

Næstkomandi föstudag 19. apríl kl 12:00-13:00, bjóða Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur upp á hádegisgöngu um Kvosina undir leiðsögn Guðmundar Ingólfssonar ljósmyndara og Guðnýjar Gerðar Gunnarsdóttur borgarminjavarðar.


Kjothus

Námskeið fyrir húsamiði: Viðhald og viðgerðir gamalla húsa | 06.03.2013

Þetta námskeið er fyrir alla sem ætla sér að vinna við viðhald og viðgerðir á gömlum timburhúsum. Fjallað er um undirstöður og burðarvirki og farið yfir frágang bæði utan og innan húss. Skoðuð eru gömul timburhús sem hafa verið endurbyggð.

Skoða alla viðburði