Með hugtakinu menningarlandslag er átt við það landslag eða umhverfi sem maðurinn hefur mótað með búsetu sinni hverju sinni. Í Reykjavík hafa fundist minjar um búsetu frá því á 9. öld og ber því fornleifum saman við ritheimildir um að hingað hafi fluttst fólk á þeim tíma sem nefnt er landnámsöld. Nesið sem borgin stendur á hefur mótast af búsetu í margar aldir og hver kynslóð hefur markað sín spor í landið. Það umhverfi sem við þekkjum í dag er því manngert að miklu leyti. Meðal minjastaða í Reykjavík þar sem sjá má menningarlandslag má nefna Laugarnes, Kvosina í miðbæ Reykjavíkur, Skildinganes við Skerjafjörð, eyjarnar á Kollafriði, Elliðaárdal, Þingnes við Elliðavatn og jarðirnar í austurhluta borgarinnar, Breiðholt, Keldur, Grafarholt og Reynisvatn.
Lesa upplýsingar sem eru á skilti við Grásleppuskúrana við Ægissíðu
Lesa nánar um fyrirhugaðar breytingar á Grímsstaðaholti

Menningarmerkinga í Reykjavík
Menningar og ferðamálaráð hefur staðið fyrir merkingum á menningarminjastöðum frá 2008. Skiltin eru öll með fróðleik um sögu og auk gamalla mynda. Hönnuður skiltanna er Finnur Malmquist, Minjasafn Reykjavíkur hefur lagt til efni en myndir koma frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Þjóðminjasafni.
Höfði
(Pdf 10,4 MB)
Bernhöftstorfan
(Pdf 8,36 MB)
Hallargarðurinn
(Pdf 7,2 MB)
Mæðragarðurinn
(Pdf 4,64 MB)
Hljómskálagarðurinn
(Pdf 4,2 MB)
Austurvöllur
(Pdf 3 MB)
Ingólfsnaust
(Pdf 3,4 MB)
Breiðholtsbærinn (Pdf 5,4 MB)

Í tilefni 50 ára afmælis Árbæjarsafns árið 2007 voru gerð upplýsingaskilti sem standa í heimtröðinni við Árbæ. Á skiltunum má fræðast um sögu Árbæjar í Mosfellssveit og einnig sögu Árbæjarsafns.
Upphaf Árbæjar
(Pdf 1923 kb)
Árbær árið 1704
(Pdf 1777 kb)
Áfangastaður í alfaraleið
(Pdf 1882 kb)
Árbær og býlin í kring
(Pdf 447 kb)
Upphaf Árbæjarsafns
(Pdf 1550 kb)
Vöxtur borgarinnar
(Pdf 1847 kb)
Kirkjan og safnhúsin
(Pdf 1469 kb)
Elliðaárdalur
(Pdf 4149 kb)

Við Þvottalaugarnar í Laugardal er að finna upplýsingaskilti um störf þvottakvenna í Reykjavík forðum.
Þvottalaugaskilti
(Pdf 3,1 MB)