
Grunnskóli
Minjasafn Reykjavíkur býður nemendum 5. og 6. bekkjar grunnskóla að heimsækja sýninguna í vetur. Sýningin er skoðuð undir leiðsögn safnkennara. Gera má ráð fyrir að heimsóknin taki um eina klukkustund.
Tekið er á móti nemendum frá kl. 8 mánudaga til fimmtudaga.
Spurningaleikur
Verkefni áður en sýningin er heimsótt (pdf)
Verkefni þegar sýningin hefur verið heimsótt (pdf)
Landnám fyrr og nú (pdf)
Framhaldsskóli
Framhaldsskólanemendum er boðið að heimsækja sýninguna og nýta sér hana til fræðslu og heimildaöflunar. Nemendahópum býðst að koma í heimsókn í fylgd með kennara og skoða sýninguna undir leiðsögn safnkennara. Í framhaldi af því bjóðum við nemendum að koma aftur á sýninguna, einir eða í smærri hópum, og afla sér með aðstoð safnkennara heimilda í verkefni tengd efni hennar t.d. fyrirlestra eða ritgerðir ef óskað er.
Verkefni fyrir framhaldsskólanemendur
Skoða fornleifarnar sem eru á sýningunni
Háskóli
Nemendum háskóla og sérskóla býðst einnig að skoða sýninguna með leiðsögn.
Nemendur í skólaheimsóknum greiða ekki aðgangseyri.
Panta þarf leiðsögn fyrir skólahópa í síma 411 6370 / 664 7370 eða á tölvupóstfangið: landnam@reykjavik.is