mynd

Aðgangseyrir

Fullorðnir: 600 kr.
Börn til 18 ára: 300 kr.
Ellilífeyrisþegar: 300 kr.
Öryrkjar: 300 kr.
Hópafsláttur: 10 eða fleiri 450 kr. á mann.
Börn 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum fá ókeypis aðgang.

Opnunartími

Sýningin Reykjavík 871 er opin alla daga frá 10-17.

Reykjavík 871±2
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
Sími:411 6370

Margmiðlunarsýning Landnámssýningarinnar Reykjavík 871

Margmiðlunarsýning/Multimedia

Landnámssýningin Reykjavík 871

Séð yfir sýningarsalinn


Reykjavík 871±2 fjallar um landnám í Reykjavík.  Sýningin byggir á kenningum fræðimanna um það sem fornleifar í Reykjavík geta sagt okkur um líf og störf þeirra sem fyrst settust hér að.  Miðpunkturinn er rúst skála  frá 10. öld sem fannst árið 2001.  Búið var í skálanum frá því um 930 til 1000.  Norðan við skálann fannst veggjarbútur sem er ennþá eldri, eða frá því um 871 og eru það elstu mannvistarleifar sem fundist hafa á Íslandi.

Heiti sýningarinnar

Reykjavík 871±2 vísar til þess að landnámsgjóskulag féll yfir landið árið 871 en ártalinu gæti skeikað um tvö ár, af eða á.  Gjóskan barst með vindum frá eldstöðvum á Torfajökulsvæðinu en gegnir nú lykilhlutverki þegar tímasetja á minjar frá upphafi byggðar í Reykjavík. 

Hvernig var Reykjavík fyrir 1100 árum?
Á sýningunni er reynt að gefa hugmynd um umhverfi Reykjavíkurbæjarins eins og það var við landnám. Skálarústin er varðveitt á sínum upphaflega stað og er miðpunktur sýningarinnar. Einnig eru sýndir munir sem fundust í rústinni og munir sem fundust við fornleifauppgröft í Suðurgötu, Tjarnargötu og í Viðey , en á þessum stöðum hafa einnig fundist ýmsar minjar frá landnámstíma. Tilgátumyndir af landslagi og gróðurfari á 10. öld eru á veggjum umhverfis rústina.

Lífið á landnámsöld

Tilgátuteikning af landnámsskálanumSkálarústin er skýrð með nýstárlegri marmiðlunartækni.  Í tilgátuglugga má kalla fram þrívíða tilgátumynd af því hvernig skálinn var á sínum tíma og jafnframt er byggingartækni hans skýrð.  Á margmiðlunarborði er mynd af rústinni þar sem gestir geta sótt margvíslegar upplýsingar um fornleifafræði og hvað eina sem lýtur að upphaflegri gerð hússins, lífi og starfi sem í því var.  Á samanburðarskjám má fræðast um skyldleika ýmissa menningarþátta þjóða við Norður-Atlantshaf og landnám og útrás víkinga.

Ýmsum spurningum er varpað fram á sýningunni og leitað svara við þeim: Hvers vegna settist fólk hér að? Hvernig var umhverfið? Á hverju lifði fólk? Hverjir bjuggu í skálanum? Við sumum spurninganna fæst svar en öðrum ekki og sýningargesturinn verður að virkja eigið ímyndunarafl.

Í tölvuveri í anddyri er boðið upp á margvíslegt ítarefni um viðfangsefni sýningarinnar.  Einnig var gefin út vegleg sýningarskrá.

Nánar um margmiðlunartækni sýningarinnar:
Art+Com
Gagarín


Minjasafn ReykjavíkurÁrbæjarsafniKistuhyl110 ReykjavíkSími 411 6300minjasafn@reykjavik.is
mynd