Eldri fréttir

Styrkir úr húsverndarsjóði Reykjavíkurborgar

Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum. Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í umsókn:

1. Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
2. Tímaáætlun.
3. Kostnaðaráætlun.
4. Ljósmyndir af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmyndir ef þær eru til.

Frekari upplýsingar eru veittar í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni sem opin er á miðvikudögum frá kl. 16-18 og í síma 411 6333 á sama tíma. Umsóknum skal skila á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna á vef Skipulags- og byggingasviðs, www.skipbygg.is og vef Minjasafns Reykjavíkur www.minjasafnreykjavikur.is.

Umsóknareyðublöð liggja einnig frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14. Umsóknir skulu berast Skipulags- og byggingasviði Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, eða rafrænt á netfangið: skipulag@reykjavik.is í síðasta lagi 15. febrúar 2012. Vakin er athygli á því að styrkir sem úthlutað var 2011 og ekki hafa verið nýttir falla niður við úthlutun 2012.

Umsóknarblað fyrir styrk úr húsverndarsjóði Reykjavíkurborgar:



Tilbaka




Senda Prenta Senda á Facebook

Viðburðir


Teikning eftir Þorstein Gunnarsson arkitekt.

Skúli Magnússon og Viðey - 12. maí 2012 | 09.05.2012

Þann 12. desember síðastliðinn voru 300 ár liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. Af því tilefni er við hæfi að bregða upp svipmyndum af Skúla, verkum hans og samtíð, í því húsi sem hann lét reisa sem embættisbústað og flutti inn í með fjölskyldu sinni haustið 1755.


Stúlka og lamb

Opnunartími um páska hjá Minjasafni Reykjavíkur | 27.03.2012

Með því að smella á titil þessarar fréttar má fræðast meira um opnunartíma Árbæjarsafns og Landnámssýningarinnar Reykjavík 871 +/-2.


husvernd_malthing

Að gera upp hús - Málþing | 12.03.2012

Húsverndarstofa stendur fyrir málþingi um viðhald og endurbætur eldri húsa. 16. mars kl. 14:00 í Árbæjarsafni Öll hús þarfnast viðgerðar og viðhalds. Að gera upp hús er fag og krefst ígrundunar.

Skoða alla viðburði