Buxur, vesti, brók og skó
Sýning á heimagerðum barnafötum á Árbæjarsafni

Buxur, vesti, brók og skó er ný sýning sem opnuð var í Suðurgötu 7 á Árbæjarsafni sunnudaginn 5. júní s.l.. Á sýningunni má sjá heimagerð barnaföt frá ýmsum tímum. Þar er hægt að sjá heklaða og prjónaða kjóla, vélprjónaðar ullarnærbuxur, útsaumaðar stuttbuxur á stráka, marglita heklaða peysu, vatteraða útigalla og margt fleira skemmtilegt.
Í geymslum Minjasafns Reykjavíkur eru varðveittir margir góðir gripir. Algengastir eru nytjahluir af ýmsu tagi sem varpa ljósi á daglegt líf í Reykjavík, meðal annars flíkur á yngstu kynslóðina. Að koma ull í fat og mjólk í mat var hluti af heimilishaldi fyrrum en með breyttum samfélagsháttum og ört vaxandi þéttbýli færðist vinnan út af heimilinu. Áfram héldu þó konur, og stundum karlar, að búa til flíkur á heimilisfólkið þó ullarvinnslan sjálf færðist smám saman út af heimilinu. Nú sem aldrei fyrr hafa margir ánægju af því að prjóna, hekla og sauma á ungviðið. Það sem eitt sinn var nauðsyn er nú oftar en ekki farvegur fyrir sköpunarþrá og mikill gleðigjafi.
Á þessari sýningu má líta fjölbreyttar barnaflíkur. Flestar koma þær úr fórum safnsins en en einnig eru hér góðir lánsgripir. Allar flíkurnar eiga það sameignlegt að vera handgerðar. Prjón, hekl og saumur sést hér í ýmsum útgáfum.
Minjasafn Reykjavíkur hefur áhuga á að eignast fleiri handunnar flíkur af börnum, sérstaklega er áhugavert fyrir safnið að eignast heimagerðar barnaflíkur frá tímabilinu 1970 til dagsins í dag.
Ef þú lumar á gamalli peysu, húfu eða öðru sem gæti orðið áhugaverður safngripur máttu gjarnan senda okkur línu á netfang gerdur.robertsdottir@reykjavik.is eða hringja í síma 411 6316. Skrifstofa safnsins er opin alla virka daga kl. 8:30-16:00.
Tilbaka