Upplýsingar um opnunartíma á Árbæjarsafni og Landnámssýningunni Reykjavík 871 +/-2.
Nú hægt að sækja um sumarstörf fyrir sumarið 2013. Umsóknareyðublað er aðgengilegt á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is.
Minjasafn Reykjavíkur gefur reglulega út skýrslur um rannsóknir á húsum og fornleifum. Með því að velja útgáfu hnappinn má nálgast hluta af skýrslunum í pdf formi. Eldri skýrslur má nálgast á sumum bókasöfnum og hjá afgreiðslu Minjasafns Reykjavíkur.
Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum
Ekki verður boðið upp á ráðgjöf í Húsverndarstofunni í desember.
Hægt er að leita til Húsafriðunarnefndar í síma 570 1300.
Frá og með 1. september tekur vetrardagskrá Árbæjarsafns við. Þá er boðið upp á leiðsagnir alla daga kl. 13. Safnsvæðið er annars opið, en safnhúsin ekki. Tekið er á móti hópum (bæði skólahópum og ferðmannahópum) eftir samkomulagi. Hægt er að panta leiðsögn á minjasafn@reykjavik.is.
Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 12. ágúst. Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið klukkan 14:00. Að venju verður lifandi tafl sem hefst klukkustund fyrr, eða klukkan 13:00.
Sumarið er komið og hefðinni samkvæmt hefst sumarstarf Árbæjarsafns 1. júní. Dagskrá sumarsins verður að vanda fjölbreytt og skemmtileg. Meðal viðburða má nefna Jónsmessugleði, skátahátíð, fornbíladag, harmonikkuhátíð, heyannir, skákmót og haustmarkað.
Árbæjarsafn kemur vel undan vetri. Sauðburður gekk vel og ungviðið á safninu blómstrar. Enda má segja að sumarið verði á ýmsan hátt helgað æskunni, því í sumarbyrjun verða opnaðar þrjár sýningar sem tengjast börnum og ungu fólki.
Lokað verður í Húsverndarstofunni 4. apríl.
Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum.
Húsverndarstofan á Árbæjarsafni verður lokuð dagana 21. desember og 28. desember. Hún verður svo á sínum stað eftir áramót. Húsaverndarstofan vill þakka öllum sem hafa komið í heimsókn á liðnu ári.
Jólasýning Árbæjarsafns hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hlotið fastan sess í menningarlífi höfuðborgarinnar á aðventunni. Að þessu sinni verður dagskrá sunnudagana 4., 11. og 18 desember frá kl. 13 til 17.
Nefnd sú, er skipuð var af Skipulagsráði Reykjavíkur til að gera tilnefningar um viðurkenningar vegna endurbóta á eldri húsum, hefur lokið störfum. Lagt er til að í ár hljóti þrjú hús viðurkenningu; Garðastræti 44, Laufásvegur 10 og Þingholtsstræti 17.
Frá og með 1. september tekur vetrardagskrá Árbæjarsafns við. Þá er boðið upp á leiðsagnir þrisvar í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13. Safnsvæðið er annars opið, en safnhúsin ekki. Tekið er á móti hópum (bæði skólahópum og ferðmannahópum) eftir samkomulagi. Hægt er að panta leiðsögn á minjasafn@reykjavik.is.
Þann 5. júní síðastliðinn var opnuð ný sýning í Suðurgötu 7 þar sem heimagerð barnaföt eru í forgrunni.
Er ekki kominn tími til að sulta ? Nýupptekinn rabarbari til sölu í Krambúð safnsins. Kílóið á 100 kr.
Sumardagskrá Árbæjarsafns tekur gildi n.k. miðvikudag, 1. júní.