mynd

Aðgangseyrir

Fullorðnir: 600 kr.
Börn til 18 ára: ókeypis.
Eldri borgarar: ókeypis.
Öryrkjar: ókeypis.
Aðgangur ókeypis á föstudögum yfir sumarið.
Hópafsláttur: 10 eða fleiri kr. 300 á mann.

Opnunartími

Opið alla daga 1. júní til 1.september frá kl.10- 17.

Yfir vetrartímann eru fastar leiðsagnir um Árbæjarsafn alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga klukkan 13-14. Allir velkomnir.

Árbæjarsafn

Leikið á harmónikku við Hábæ

Börn á Árbæjarsafni Kýrin Skjalda

 

Árbær var rótgróin bújörð allt fram á 20. öld, en safnið var opnað þar árið 1957. Árbæjarsafn er útisafn og auk Árbæjar eru þar yfir 20 hús, sem mynda torg, þorp og sveit. Flest húsin hafa verið flutt úr miðbæ Reykjavíkur. Í Árbæjarsafni er leitast við að gefa hugmynd um byggingalist og lifnaðarhætti í Reykjavík og á sumrin má þar sjá húsdýr og mannlíf fyrri tíma.

Í safninu er boðið upp á fjölda sýninga og viðburða, þar sem einstökum þáttum í sögu Reykjavíkur eru gerð skil. Þar má nefna handverksdaga, fornbílasýningu, jólasýningu og margt fleira. Allir eiga að finna eitthvað við sitt hæfi í Árbæjarsafni.
Skoða dagskrá


Byggingartæknisýning
Að komast þangað


Leið nr. 19 stoppar við Streng og leiðir nr. 12 og nr. 24 við Höfabakkann. Einnig er stutt að ganga frá Ártúni, en þar stoppa nokkrir strætisvagnar. Sjá kort

 

Sýningar


Í Árbæjarsafni eru fjölbreyttar sýningar sem varpa ljósi sögu borgarinnar.
Skoða sýningar

 

 

Veitingasala


Dillonhus_gomul_myndGestum gefst kostur á að kaupa kaffiveitingar í Dillonshúsi á opnunartíma safnsins. Dillonshús var reist árið 1853 á horni Túngötu og Suðurgötu. Húsið dregur nafn sitt af þeim manni sem lét smíða það, Arthur Dillon, en hann kom til Íslands árið 1834 í þeim tilgangi að skoða landið og skrifa um það ferðabók.  Á meðan dvöl hans stóð á Íslandi varð hann ástfanginn af íslenskri konu, Sire Ottesen, og eignaðist með henni dóttur. Dillon reisti húsið og óskaði eftir því að fá að giftast Sire. Sökum þess að hann var kaþólskrar trúar þurfti hann leyfi hjá danska kanselínu, sem hafnaði beiðni hans fyrir áhrif ættingja hans sem lögðust mjög gegn ráðahagnum. Um áraraðir rak Sire veitingasölu í húsinu og hélt þar dansleiki, eða svo kölluð píuböll. Auk þess leigðu hún eitt herbergja hússins og meðal leigjenda hennar var skáldið og náttúrufræðingurinn Jónas Hallgrímsson. Dillonhsús var flutt á Árbæjarsafn árið 1961 og hefur hýst veitingasölu safnsins síðan.


 
Verslanir


Grétar í krambúðMinjagripaverslun er í miðasölunni í húsinu Laugavegi 62. Þar eru til sölu póstkort, bækur og minjagripir. Krambúð er í húsinu Lækjargötu 4, þar má fá keypt gamaldags slikkerí í kramarhúsum, bollapör og kandís og fleira. Safnverslanir eru opnar á opnunartímum safnsins.



 

 

 

 

LeiðsögnLeikskólabörn

Á sumrin er daglega leiðsögn um safnsvæðið klukkan 14:00.
Yfir vetrarmánuðina, frá september til maí, er gestum boðið upp á fastar leiðsagnir um Árbæjarsafn alla: mánudaga, miðvikudaga og föstudaga klukkan 13:00 - 14:00.
Nánar um leiðsögn fyrir almenning
Nánar um safnfræðslu fyrir skóla


 


Útleiga


Minjasafn Reykjavíkur - Árbæjarsafn leigir út fundarsal í Kornhúsi. Kirkjan við Árbæ er leigð út til athafna. Sjá nánar um útleigu.



Börn á hestakerru

Gestir taka spor á dansgólfinu Harmónikkuleikari




Minjasafn ReykjavíkurÁrbæjarsafniKistuhyl110 ReykjavíkSími 411 6300minjasafn@reykjavik.is
mynd